Fokker D.VIII

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Árni H
Póstar: 1586
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Árni H »

Þykkt smykkt... bull er þetta... við mývetningar reiknum ekki með að það vanti loft... kínapressan bara gaf upp öndina... :D
Passamynd
Árni H
Póstar: 1586
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Árni H »

Krossarnir málaðir. Fyrst er vængurinn þveginn vel og svo er maskað með málningarlímbandi. Það er best að nota gult málningarlímband sem er miklu dýrara en þetta venjulega. Þegar búið er að maska fyrir merkingunni verður að nota litla spýtu (ég notaði þvottaklemmu) til þess að nudda niður allar brúnir þar sem hætta er á að málingin geti lekið undir límbandið. Ef þetta er gert verða allar línur tandurhreinar og engin þörf á lagfæringum eftirá.


Mynd

Mynd

Mynd

Kv,
Árni H
Passamynd
Árni H
Póstar: 1586
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Árni H »

Hérna er vídeó sem ég hnoðaði saman um krossamálninguna:



Það hefur gengið hægt með Fokkerinn í vetur - ég álpaðist til þess að fara í skóla með ríflega fullri vinnu fyrir áramót en nú er því lokið í bili þannig að Fokkersmíðin fer vonandi að mjakast áfram.

Kv,
Árni H
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir jons »

[quote="Árni"]Já, nú er það svart...[/quote]
"Nah", hugsaði ég, "Þetta er bara svart-ish".

[quote="Árni"]...eða svart-ish, eins og hinn svikuli Mummi myndi segja.[/quote]
Mynd

:)
Jón Stefánsson
Passamynd
Árni H
Póstar: 1586
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Árni H »

Eftir nokkurt hlé á málningarvinnu var haldið áfram í morgun.

Mynd

Ef grannt er skoðað má hugsanlega greina þjáningarsvip :D

Mynd

Kv,
Árni H
Passamynd
Messarinn
Póstar: 936
Skráður: 1. Apr. 2005 12:44:30

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Messarinn »

Duglegur ;)
Guðmundur Haraldsson Flugmódelfélag Akureyrar

A RAF engineering officers joke: Whats the difference between a fighter pilot and his aircraft? The plane stops whining when you shut down the engines.
Passamynd
Árni H
Póstar: 1586
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Árni H »

Mynd
Passamynd
Gaui
Póstar: 3675
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Gaui »

[quote=Árni H]Eftir nokkurt hlé á málningarvinnu ... [/quote]

Úrdráttur ársins !

Góðir hlutir gerast seint. Hvað er sameiginlegt með þessum tveim myndum og hvernig tengjast tölurnar 9 og 10 við það?

Mynd

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Árni H
Póstar: 1586
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Árni H »

Útsendara FMFA á Jótlandi leist ekki betur á vinnuhraðann við málinguna en svo, að hann kom alla leið frá lille Dannevang til að mála fimm bletti á meðan ég fékk mér kaffi :D
Mynd

Gauja var svolítið illt í skegginu í morgun en hann reyndi samt af veikum mætti að fylgjast með...
Mynd

Tusind tak for hjælpen, Mumme!
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir jons »

Velbekomme!
Jón Stefánsson
Svara