Síða 25 af 53
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 2. Ágú. 2007 23:40:19
eftir Sverrir
Tækifærið notað þegar flugkvöldinu lauk og gengið frá hliðinu svo hægt sé að læsa því opnu.

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 8. Ágú. 2007 07:41:29
eftir maggikri
Fullt að gerast í Flugvallarmálum hjá FMS breytingar og tiltekt á flugvallarsvæðinu í grenjandi rigningu. 07 og 08. ágúst 2007. Sjá myndir seinna þegar tími gefst að setja þær inn. Það er líka verið að undirbúa Melgerðismelaflugkomuna, gera vélar klárar(einnig testfljúga) fyrir c-skoðun hjá Guðjóni smíðameistara.
Kv
MK
Nokkrar rigningar myndir af grjótfærslunni, fyllingu í holur þar sem grjótið var og fíniseringu í kringum fasteignir.

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 29. Ágú. 2007 22:56:39
eftir Sverrir
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 1. Sep. 2007 16:46:08
eftir maggikri
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 11. Nóv. 2007 13:44:49
eftir maggikri
Arnarvöllur kominn á Google Earth. Vantar að vísu update á sjálfum Google Earth.

Kv
MK
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 19. Maí. 2008 06:09:19
eftir maggikri
Góðan dag. í gær 18.maí 2008 var byrjað á að grafa fyrir startsvæði (pit)á Arnarvelli. Það voru menn frá RR-verktökum
http://www.rrverktakar.is/ sem komu á vörubíl og hjólagröfu. Einnig komu undirritaður, Gunni og Guðni V. Hérna eru nokkrar myndir frá framkvæmdunum. Þarna verður síðan steypt plan fyrir startborð og akstursleið flugvéla til og frá pitti á flugbrautir. Unnið verður í þessu næstu daga og menn beðnir um að passa sig að detta ekki í holuna. Við færum síðan tré ca 10 stk að pittsvæðinu og gerum það öruggara fyrir umferð á brautum. Þetta er heljarmikil framkvæmd og gaman væri að sjá sem flesta koma og leggja lið við að gera góðan flugvöll enn betri.

RR tók sjálfur smá skrens og snikkaði til eins og í gamla daga.

Útsýni úr gröfunni

Guðni og Gunni brugðu á leik.

kv
MK
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 19. Maí. 2008 09:00:41
eftir Sverrir
Maður skilur ykkur eftir eina yfir helgi og þá kemur bara stór hola í völlinn

Lítur vel út

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 19. Maí. 2008 09:27:13
eftir kip
Drýpur smjör af hverju strái þarna? Til hamingju með þetta!
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 19. Maí. 2008 11:49:18
eftir maggikri
[quote=kip]Drýpur smjör af hverju strái þarna? Til hamingju með þetta![/quote]
Takk fyrir það KIP, ekki veitir af smá peppi í svona stórframkvæmdum
kv
MK
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 19. Maí. 2008 17:20:19
eftir maggikri
Símamynd í dag
kv
MK
