Síða 27 af 60

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 12. Des. 2012 22:54:54
eftir Patróni
Til lukku með gripinn drengir,við erum með eina svona sem er mest notaðasta rafmagngræjan í smiðjunni okkar,ja þó fyrir utan ískápinn sem þarf að opna og loka all oft til að ná sér í mjöðsmurningu á kverkar smiðanna.

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 13. Des. 2012 01:38:07
eftir maggikri
Þetta er snilldarsög. Ég held að Sverrir sé að safna dósum í hreiðrinu upp í svona grip.

Gaui, ég hélt fyrst að þetta væri fullur kassi af "depron " plötum fyrir inniflugið, en svona getur maður verið vitlaus!
kv
MK

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 13. Des. 2012 13:45:21
eftir Sverrir
Gengur frekar hægt með þessum kaffiþambandi smíðafélögum! ;)

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 13. Des. 2012 17:41:11
eftir Patróni
[quote=Sverrir]Gengur frekar hægt með þessum kaffiþambandi smíðafélögum! ;)[/quote]
Þetta gengur allt betur með ál dósum

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 17. Des. 2012 14:38:22
eftir Árni H
Þessi mynd náðist af títtnefndum Gauja þar sem hann var að bauka eitthvað við ljósritunarvélina í vinnunni, flóttalegur á svipinn. Þetta fer að verða hið dularfyllsta mál...

Mynd

:)

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 17. Des. 2012 17:18:11
eftir Sverrir
Þetta er agnarlítið blað sem hann heldur á!

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 17. Des. 2012 22:48:47
eftir Björn G Leifsson
Þessi Axminster sög er greinilega hið mesta þing.

1960:

Mynd

Þetta fer í safnið undir titlinum "Tilgangslausar minningar" :D

(Axminster var ein af þremur eða fjórum gólfteppaverksmiðjum á Íslandi á þessum árum)

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 23. Des. 2012 20:24:51
eftir Gaui
Mummi kíkti í morgun og bjó til benbsínlok á Birddog.

Mynd

:cool:

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 26. Des. 2012 22:53:59
eftir Gaui
Mummi kíkti áðan og bjó til fleiri hnoð. Það er nóg af þeim á Bird Dog:

Mynd

Á meðan dúllaði ég máer með svona stál hluti sem Pálmi í Geislum skar út fyrir mig. Þetta er rosalega flott skorið hjá honum -- ég get tvímælalaust mælt með leisrenum hans.

Mynd

:cool:

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 2. Jan. 2013 23:57:54
eftir Gaui
Árni og Mummi kíktu í skúrinn í fyrsta sinn á árinu. Mummi var bara að búa til hnoð, svo við tókum enga mynd af honum. Hann var eitthvað að munda símann sinn, svo það er aldrei að vita nema það komi einhver mynd af strikum og límklessum.

Árni uppgötvaði að lóðningin á vængstífunum hafði ekki heppnast alveg eins og skildi, of því dró hann upp eitthvart málm-lím sem hann blandaði og sullaði síðan oní þar sem lóðninginn heði átt að fara:

Mynd

Svo var hann búinn að fé nýtt sekúndulím úr Múrbúðini og var að prófa það:

Mynd

Það virtist líma balsann alveg sæmilega -- það komu alla vega frá því miklar gufur þegar það tók.

En svo kom í ljós að það límir húð enn betur:

Mynd

Og Gaui bjástraði við eitthvað:

Mynd

:cool: