Síða 29 af 60

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 20. Mar. 2013 11:09:23
eftir Árni H
Grísarárshake:



Maður bara spyr sig hvað hafi verið í kaffinu?

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 20. Mar. 2013 11:29:01
eftir maggikri
Sæll Árni
Það segir að þetta video sé lokað, þú hefur gleymt að aflæsa því.
kv
MK einn almesti aflæsari seinni tíma.

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 20. Mar. 2013 14:39:12
eftir Árni H
Ach - rétt er það, Maggi! Nú ætti þetta að vera komið í lag... :)

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 20. Mar. 2013 16:51:27
eftir maggikri
Er búið að vera svona vont veður fyrir norðan að þið eruð farnir að spila á vængi?
kv
MK

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 11. Apr. 2013 07:46:26
eftir Gaui
Þar sem Árni var búinn að sýna á Grunau Baby hvernig maður á að skoða módel að innan, þá datt mér í hug að reyna það við Borðdúkinn hans Mumma:

Mynd

Það var eiginlega ekki að gera sig, því ég rétt kom nefinu inn fyrir dyrnar og ekki mikið meira.

:cool:

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 21. Apr. 2013 15:41:29
eftir Gaui
Árni og Mummi komu í skúrinn í morgun eins og svo oft áður. Það var allt í lagi, svona til að byrja með. Árni setti glerfíber á hjólastellsvænginn sinn

Mynd

og Mummi planaði að hnoða neðra borðið á vængjunum á Borðdúknum:

Mynd

En þegar Mummi var búinn að hamast með fræsara á einu stýrinu í ógurlegan tíma, þá fannst Árna nóg komið.

Mynd

Og svo er hér að síðustu mynd sem Mummi vill ekki að sé birt, þannig að ef hún sést einhvern tíman, þá eiga allir að vita að hún á ekki ekki að sjást.

Mynd

:cool:

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 26. Maí. 2013 19:09:01
eftir jons
Í morgun hittumst við eins og stundum áður í bílskúrnum á Grísará.

Árni settist strax ákafur við borðendann sinn til að mála - enn og aftur - lozenge á Fokkerinn.

Mynd

Árna til hróss verður að segjast að hann er farinn að mála hraðar en maður nær að segja framhaldssaganendalausaumflugmódelmanninnsemnenntieiginlegaekkiaðmálafokkerinnsinn. Ó hvað við eigum allir eftir að sakna myndanna af Árna að mála lozenge þegar hann loks klárar þetta..

En á meðan Árni húkti í örvinglan yfir síðustu tíglunum sýndi Gaui enn einu sinni hvers hann er megnugur. Á örstuttri stund náði hann bæði að reisa skalamódel af nálinni í Dubai...

Mynd

...og gera við gat á vinnusloppinum eins og sannur flugmódelmaður.

Mynd

Over and out,
Mummi

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 26. Maí. 2013 19:15:08
eftir Gaui
Árni ekki bara reif hár sitt og skegg, heldur hengdi hann haus á hjólastellið -- tíglarnir eru að ná honum!

Mynd

Og Mummi gerði líka það sem honum finnst skemmtilegast (ekki!) -- hann var stífur við að pússa stífur!

Mynd

:cool:

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 26. Maí. 2013 22:23:08
eftir Messarinn
He he góðir

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 27. Maí. 2013 12:55:55
eftir Árni H
20% smíðar - 80% glens :D