Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11689
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir Sverrir »

Já það var tekið til hendinni á flugmódelvöllum landsins í dag. Steini sást á fleiri en einum velli og allt var á fullu. ;)

Gunni tók sig til í vikunni og reddaði eins og einum 40 feta gámi fyrir félagið svo það var ekki eftir neinu að bíða að koma honum út á Arnarvöll í blíðunni í dag.
Áhugasamir geta séð fleiri myndir á vef flugmódelfélagsins.

Ég og Gunni mættum niður á Sundahöfn fyrir sólarupprás að ná í gáminn.
Mynd

Svo var land lagt undir fót.
Mynd

Sökum lengdar þá þurfti að fara ótroðnar slóðir.
Mynd

Ekkert mál fyrir Jón Pál.
Mynd

Færa þurfti nokkra hnullunga, þeir fóru létt með það strákarnir.
Mynd

Reyndar þurfti að beita smá vélarafli á stærri steinana. ;)
Mynd

Allt að gerast og gámurinn kominn á sinn stað.
Mynd

Fínasti frystigámur.
Mynd

Yfirlitsmynd af Arnarvelli, gámurinn breytir svo um lit með hækkandi sól.
Mynd

Já það var sko nóg að gera hjá Steina í dag. :)
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Messarinn
Póstar: 936
Skráður: 1. Apr. 2005 12:44:30

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir Messarinn »

Ja hérna,
við hérna á Melgerðismelum hefum verið raðaðir upp og skotnir að skipan Sveitastjórnar og byggingafulltrúa ef við hefðum mætt með svona fínan gám.

en hvað ætlið þið að geyma í honum??
Guðmundur Haraldsson Flugmódelfélag Akureyrar

A RAF engineering officers joke: Whats the difference between a fighter pilot and his aircraft? The plane stops whining when you shut down the engines.
Passamynd
maggikri
Póstar: 6057
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir maggikri »

[quote=Messarinn]Ja hérna,
við hérna á Melgerðismelum hefum verið raðaðir upp og skotnir að skipan Sveitastjórnar og byggingafulltrúa ef við hefðum mætt með svona fínan gám.

en hvað ætlið þið að geyma í honum??[/quote]
Þetta er nýja flugskýlið. ásamt geymslu fyrir dót sem tilheyrir rekstur á flugvelli.
kv
MK
Passamynd
maggikri
Póstar: 6057
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir maggikri »

Og við sem ætluðum ekki að framkvæma mikið í ár. Ekkert að marka þessa FMS karla.

Kv
MK
Passamynd
Fridrik
Póstar: 119
Skráður: 25. Okt. 2007 21:10:28

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir Fridrik »

Dugnaður er þetta í ykkur, manni sýnist að það sé búið að Clona Steina hann er allstaðar :)

kveðja frá USA
Friðrik
Passamynd
maggikri
Póstar: 6057
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir maggikri »

[quote=Fridrik]Dugnaður er þetta í ykkur, manni sýnist að það sé búið að Clona Steina hann er allstaðar :)

kveðja frá USA
Friðrik[/quote]
Frikki , Þú ert allstaðar, varst í Hollandi um daginn og kominn til USA. Ætli maður verði að láta verða að því að ganga í Þyt líka, svo maður geti verið allstaðar með Steina.

kv
MK
Passamynd
Fridrik
Póstar: 119
Skráður: 25. Okt. 2007 21:10:28

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir Fridrik »

[quote=maggikri][quote=Fridrik]Dugnaður er þetta í ykkur, manni sýnist að það sé búið að Clona Steina hann er allstaðar :)

kveðja frá USA
Friðrik[/quote]
Frikki , Þú ert allstaðar, varst í Hollandi um daginn og kominn til USA. Ætli maður verði að láta verða að því að ganga í Þyt líka, svo maður geti verið allstaðar með Steina.

kv
MK[/quote]
hvar ætli maður verði nú næst :)
Passamynd
kip
Póstar: 564
Skráður: 24. Apr. 2006 13:44:49

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir kip »

Gummi fáum okkur svona gám á Melana og þegar liðið kemur til að raða okkur upp fyri aftöku þá læsum við okkur inn í honum
Kristinn Ingi Pétursson
Netfang: kip[hjá]kip.is | vefsíður: www.kip.is og www.stafn.is | Sími: 650 5252
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11689
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir Sverrir »

Ég og Gunni skelltum okkur út á völl seinni partinn að þvo innan úr gámnum og fínstilla hliðpóstana eftir vetrarfjörið. Nokkrar myndir í viðbót má sjá í myndasafninu.

Vel græjaðir.
Mynd

Því miður réð ljósavél félagsins ekki við þessa fínu græju svo það var plan B.
Nei það var ekki uppþvottabursti og fata.

Mynd

Heldur „örlítið“ minni útgáfa.
Mynd

Gunni í góðum gír.
Mynd

Því næst var ráðist á hliðpóstana.
Mynd

Gunni heimtaði að fá að taka eina mynd, annars myndi engin trúa að ég hefði gert eitthvað. Aldeilis álit á manni! :P
Mynd

Þetta líka fína bil.
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
maggikri
Póstar: 6057
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstur eftir maggikri »

Flottir!
Svara