[quote=einarak]Hvernig gengur með Messerschmit?[/quote]
Messerschmitt-inn rykfellur nú bara í bílskúr út í bæ ásamt fleiri flugvélum sem ég á.
ég er að setja saman spittarann núna á borðstofuborðinu hérna heima og reyni hvað ég get,svo þarf maður alltaf að fara í vinnuna á morgnana og þá gerir maður nú lítið í módel dótinu
vildi að ég væri Milli.
Kveðja
Re: YT Spitfire Mk XIV
Póstað: 17. Jan. 2008 20:11:23
eftir Messarinn
Kannski maður ætti að halda áfram með þennan þráð
Næst var að líma stélfletina í skrokkin og setti límband ég meðfram opinu til að það fari ekki epoxy á skrokkinn
Þarna kom ekkert markvert up og passaði þetta bara nokkuð vel
Re: YT Spitfire Mk XIV
Póstað: 22. Jan. 2008 21:01:17
eftir Messarinn
Svo var næst að setja rudderinn á og það gekk eins og í sögu þangað til að kom að því að festa stélhjólið á skrokkin og á rudderinn
Áfallshornið á skrokknum og ruddernum er ekki 90 gráður enn hjólastellið var það ,því þurfti éga að saga upp í festinguna á stélhjólinu og fella það niður á skrokkin svo vefja það með vír og epoxa yfir vírinn, sjá myndir
Re: YT Spitfire Mk XIV
Póstað: 7. Des. 2008 22:41:40
eftir Messarinn
Langaði að benda á að það eru slatti af smíða myndum af þessum Spitfire á Flikkinu http://www.flickr.com/photos/gudmundur/
Þar á meðal hvernig canopian virkar og mælaborðssmíði
Kveðja
Re: YT Spitfire Mk XIV
Póstað: 10. Des. 2008 00:16:16
eftir Messarinn
Á ekki einhver video af spittaranum á flugi sem ég get fengið
ég gleymdi allveg að láta taka video af vélinni í sumar
Kveðja Messarinn
Re: YT Spitfire Mk XIV
Póstað: 10. Des. 2008 08:37:09
eftir maggikri
Ég skal athuga hvort að ég eigi eitthvað!
kv
MK
Re: YT Spitfire Mk XIV
Póstað: 10. Des. 2008 17:02:04
eftir Messarinn
Takk Maggi
Sendu bara á netfangið mitt sem er gummihar at gmail punktur comm
kveðja
Re: YT Spitfire Mk XIV
Póstað: 14. Des. 2008 21:03:26
eftir maggikri
Sæll Gummi minn!
Ég fór yfir videoið sem ég tók á flugkomu FMA 2008. Þetta er gríðarlega mikið efni sem ég á af videoi,en ég fann ekkert af Spitfire, Hurricane eða Thunderbolt í fljótu bragði.
Skýringin á Hurricane og Thunderbolt(grái hans Þrastar) var að ég var aðstoðarmaður í báðum tilfellum. Svona eftir á að hyggja er það mjög leitt vegna þess að þið fluguð þeim mjög skemmtilega og komuð í skemmtilega lág "fly by" (gera lágt).
Ég ætla samt að kíkja betur á þetta og læt þig vita ef ég finn eitthvað skemmtilegt.
kv
MK