Síða 4 af 7

Re: Lengi getur vont versnað!!!!!!!!!

Póstað: 12. Maí. 2009 18:11:21
eftir Gaui
[quote=einarak][quote=Gaui]...Og ég hefði ekki gefið í lendingarstaðinn ef hann hefði verið að fíflast á Klambratúninu...[/quote]
og nú ert þú að líkja því saman að vera með 250 gramma vél og að vera með 250cm vél á Miklatúni...[/quote]
Nei, það var ég ekki að gera. Ég var að benda á að vegna þess að Steinþór var á flugvellinum suður með sjó, þá var mjög lítil hætta á ferðum.

En nú hef ég ákveðið að hætta þessum stælum og einbeita mér að uppbyggilegri málum, eins og t.d. hvernig á að framleiða balsaryk.

Re: Lengi getur vont versnað!!!!!!!!!

Póstað: 12. Maí. 2009 20:05:14
eftir Björn G Leifsson
Heyriði,, er GB kominn niður úr trjánum???

Re: Lengi getur vont versnað!!!!!!!!!

Póstað: 13. Maí. 2009 15:25:51
eftir Sigurður Sindri

Re: Lengi getur vont versnað!!!!!!!!!

Póstað: 13. Maí. 2009 17:26:26
eftir ErlingJ
ekki beint gáfulegur staður til að standa á .... inn á miðri braut!!!!!!!!

Re: Lengi getur vont versnað!!!!!!!!!

Póstað: 13. Maí. 2009 18:26:14
eftir Sverrir
Ef þú skoðar vídeóið aftur þá sérðu að hann stendur við brautina(sem er slegin og ljósari á litinn) en ekki út á henni. En ég get alveg samþykkt að hann sé dálítið nálægt fjörinu.

Hins vegar sýnir þetta ljóslega afhverju flugmenn ættu alltaf að standa nálægt hvor öðrum þegar þeir eru að fljúga!

Re: Lengi getur vont versnað!!!!!!!!!

Póstað: 13. Maí. 2009 20:57:48
eftir Gaui K
Algjörlega sammála þér Sverrir!
það er hrikalega vont að koma inn til lendingar og vita af manni standa við miðja braut ! maður veit ekki hvort hann er inná eða rétt við brautina.

Re: Lengi getur vont versnað!!!!!!!!!

Póstað: 13. Maí. 2009 21:18:50
eftir Agust
Svo ættu flugmenn líka að standa nokkur skref frá brautinni meðan þeir eru að fljúga, en sá sem ætlar að lenda gengur nær henni. Þannig ættu aðrir flugmenn að vera sæmilega óhultir, og trufla heldur ekki þann sem er að lenda.

Re: Lengi getur vont versnað!!!!!!!!!

Póstað: 14. Maí. 2009 00:35:29
eftir Björn G Leifsson
Hehe, hvað finndist ykkur um að innfæra amerísku reglurnar, með girðingar spottakorn frá braut, sem flugmenn verða að standa á bakvið.
Hér sjást svoleiðis girðingar sem eru skylda á amerískum módelflugvöllum og seinna í bandinu sést dæmi um hvers vegna þær eru góð hugmynd:

Re: Lengi getur vont versnað!!!!!!!!!

Póstað: 14. Maí. 2009 00:57:07
eftir Ljoni
og afhverju eru ekki svona net hérna á landi þetta gæti nú alveg gerst hérna ekki jafn myklar líkur en samt. skárra að stúta bara flugvél heldur en flugvél og manni eða 2

Re: Lengi getur vont versnað!!!!!!!!!

Póstað: 14. Maí. 2009 00:59:26
eftir Björn G Leifsson
Talandi um þotur, bruna og yfirskrift þessa spjallþráðar "Lengi getur vont versnað"

Hér er myndband sem lýsir því ágætlega, hvers vegna ég hef engan áuga á að útvega mér þotumódel (nema þá kannski hægfleygt ef það er til).
Það lýsir líka því hvers vegna slys af þessu tagi gæti gert okkur verulega óvinsæla ef svona bredda til dæmis færi niður í skóginn við Hvaleyrarvatn á góðum útivistardegi með tankinn fullan af grillvökva.