Síða 4 af 5

Re: Samkaup? Mótor, servó, hraðsmíðakit

Póstað: 25. Jún. 2010 19:23:06
eftir Guðjón
Byko hjá IKEA.. Fagmenn, rétt hjá hilluefninu :)

Re: Samkaup? Mótor, servó, hraðsmíðakit

Póstað: 25. Jún. 2010 20:17:01
eftir Gaui
Doktor!

Bættu við einum í viðbót hér fyrir norðan! Sveinbjörn vinur okkar ætlar að fá eina!

Re: Samkaup? Mótor, servó, hraðsmíðakit

Póstað: 25. Jún. 2010 20:18:58
eftir Guðjón
Þú lofar að gera vandaðan smíðaþráð er það ekki? Eða jafnvel einn þráð þar sem allir eta sýnt sínar véla :)

Re: Samkaup? Mótor, servó, hraðsmíðakit

Póstað: 26. Jún. 2010 09:47:21
eftir Gaui
Það verður öruglega smíðaþráður :cool:

Re: Samkaup? Mótor, servó, hraðsmíðakit

Póstað: 29. Jún. 2010 18:48:40
eftir Björn G Leifsson
Jæja.
Þá er komið tilboð frá Traplet með dyggri aðstoð Steve Holland. ef við tökum 8 stk þá fæst 10% afsláttur og 80 pund sendingin.
Þannig verður kostnaðurinn £131,5 með sendingarkostnaði fyrir settið af leysiskornum við í Farmhand 90. (ef einhver kann að reikna út lokakostnað í kreppukrónum þá er það vel þegið)

Ég,
Gaui,
Þorsteinn,
Kjartan,
Sveinbjörn,
Ágúst,
Gunni Binni

...telst mér að hafi ákveðið sig og þá stendur eitt auka sett eftir annaðhvort handa mér eða ef einhverjir fleiri vilja hoppa á lestina.

Ég reikna með að allir séu búnir að kaupa diskinn. Ef hann hefur skemmst hjá einhverjum þá afritaðist diskurinn hans Gauja alveg óvart inn í mína tölvu svo það er hægt að redda því ;)

Ég panta þetta á morgun svo það er bara að láta mig vita í meili (klikka á netfang hér til vinstri) ef fleiri vilja vera með.

Ég bað Steve um að senda mér lista yfir auka spýtur sem þarf til þannig að við gætum jafnvel sameinast um að panta í það.
Sjálfur er ég að hugsa um að panta 50 - 55 cc kínverjamótor í mína.

Re: Samkaup? Mótor, servó, hraðsmíðakit

Póstað: 29. Jún. 2010 20:14:11
eftir Sverrir
Tollgengi finnst á tollur.is, bættu 10% við heildarverðið, svo er 25,5% vaskur og ef þetta kemur með Póstinum bætist við um 2500 kr.

Re: Samkaup? Mótor, servó, hraðsmíðakit

Póstað: 29. Jún. 2010 21:44:45
eftir maggikri
Er þetta þá rétt um 60.000.- hingað komið. Er þá ekki hagstæðara að taka þetta saman og fá afslátt af frakt.
kv
MK

Re: Samkaup? Mótor, servó, hraðsmíðakit

Póstað: 29. Jún. 2010 22:24:28
eftir Sverrir
Ef ég skil Björn rétt þá er þetta eitthvað á þessa leið:

131,5*8 = 1052*191,79 = 201.763*1,1 = 221.939*1,255 = 278.533+2500 = 281.003/8 = ca. 35.125 stykkið

Re: Samkaup? Mótor, servó, hraðsmíðakit

Póstað: 29. Jún. 2010 23:27:40
eftir Gaui
Það minnir mig á: hver er með diskinn minn? Ég myndi gjarnan vilja fá hann aftur.

Re: Samkaup? Mótor, servó, hraðsmíðakit

Póstað: 30. Jún. 2010 05:26:21
eftir Björn G Leifsson
[quote=Gaui]Það minnir mig á: hver er með diskinn minn? Ég myndi gjarnan vilja fá hann aftur.[/quote]
Diskurinn liggur á náttborðinu mínu heima. Páll ætlaði að fá diskinn næst en hafði ekki samband ennþá.