Síða 4 af 5

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 3. Ágú. 2011 00:40:27
eftir Björn G Leifsson
Plan B er auðvitað rabrbarasulta ( á vöflurnar þeas)

Belgingur.is (sem er alltaf mun áreiðanlegri en yr.no !!) er ekkert viss um veðrið á fös. - lau. Skv ameríska spálíkaninu (GFS) þá verður fínasta veður báða dagna. Það evrópska (ECMWF), sem alltaf er blautara, spáir rigningu föstudag fram á nótt og svo nánast þurru laugardaginn. Sem sagt óviss spá sem verður skýrari eftir því sem nær dregur.

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 3. Ágú. 2011 08:07:47
eftir Gaui
Við gerum aldrei plan B, og plan A er í góðum gír, þó það finnist ekki á Suðurnesjum.

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 4. Ágú. 2011 11:28:55
eftir Páll Ágúst
Change of plan :P Er einvher sem á far suður til baka á sunnudeginum?
Þá verð ég ekki með neina vél og þesslags dót. Bara ein göngubakpoka.
Fæ far norður með Lúlla en hann fer ekki heim fyrr en á miðvikudeginum.
Hann Ætlar að taka vélina fyrir mig, svo ég verð ekki með mikið dót?
Einhver sem á laust sæti Suður? :)

s. 8469097

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 4. Ágú. 2011 13:09:18
eftir Björn G Leifsson
Sennilega við

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 4. Ágú. 2011 14:21:56
eftir Páll Ágúst
[quote=Björn G Leifsson]Sennilega við[/quote]
Það yrði mjög vel þegið :)

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 4. Ágú. 2011 15:01:44
eftir einarak
[quote=Páll Ágúst][quote=Björn G Leifsson]Sennilega við[/quote]
Það yrði mjög vel þegið :)[/quote]
Blessaður skelltu þér norður, heimferðin er seinnitímavandamál!

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 4. Ágú. 2011 15:35:55
eftir Sverrir
Veðurspáin er orðin talsvert betri fyrir laugardaginn ef einhverjir voru að láta hana stoppa sig.

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 4. Ágú. 2011 23:09:33
eftir INE
Kemst því miður bara á laugardaginn, ætla að koma fljúgandi norður á laugardagsmorgun.

Er einhver góðhjartaður maður sem gæti pikkað mig upp í flugstöðinni á Akureyri leift mér að sitja í upp á Mela?

Áætluð lending á Akureyri 0830 á laugardagsmorgni.

Væri afskaplega vel þegið :)

Kveðja,

Ingólfur
8208686
ingoeinar@siment.is

ps: er bara með fjarstýringu, nesti og nýja skó - vélin fer í kerru á morgun.

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 5. Ágú. 2011 07:10:56
eftir Sverrir
Minni þá sem heima sitja á myndastrauminn en þar má jafnan sjá 10 nýjustu myndirnar frá flugkomunni. Með því að smella á myndirnar fæst stærri útgáfa og jafnvel smá texti með ef myndatökumaðurinn stendur sig í stykkinu! ;)

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 5. Ágú. 2011 18:49:04
eftir Haraldur
Einhverjir mættir á svæðið?
Hvernig lítur þetta út, hvernig er veðrið?
Ég er kominn hálfa leið, og fer rest á mogun.