Nokkrir punktar sem ber að hafa í huga.
* * * * *
Smellið á myndina til að stækka hana.
Ef veðurspáin gengur eftir þá notum við löngu flugbrautina(Heimsendi-Skógarendi) á laugardaginn og svo hina á sunnudeginum. Hafið hins vegar í huga að skjótt skiptast veður svo farið öllu með gátt þegar ekið er fram hjá brautarendunum(fjólubláa línan).
Þegar komið er á svæðið þarf að huga að því hvar bílnum er lagt, þeir sem eru komnir til að fljúga leggja bílnum á græna svæðinu ásamt þeim sem eru með blá P merki eða aðrar löglegar ástæður. Aðrir eru beðnir um að leggja á bláa svæðinu fyrir aftan grasmönina. Ef þessi svæði fyllast þá munum við opna inn á gula veginn og þá er hægt að leggja þar í kantinum. Vinsamlegast ekki leggja í hringtorginu.
Farið að hvíta vagninum og skráið ykkur áður en lengra er haldið, þeir sem eru enn á 35 mhz athugið að kanna hvort fleiri eru á ykkar tíðni hjá skrásetjara. Ekki má kveikja á 35 mhz sendum nema viðkomandi sé með sína klemmu á tíðnispjaldinu.
Tjald verður á svæðinu(rauður kassi) en það er meira hugsað sem skjól ef úrhelli gerir, menn eru hvattir til að fjárfesta í segldúk til að skýla módelunum en 6m
2 dúkar hafa t.d. fengist í Europris á ca. 2.000 krónur. Appelsínugula svæðið er hugsað fyrir samsett flugmódel á milli fluga og verður stúkað af.
Módel skulu gangsett á svæðinu sem afmarkast af rauðu og gulu brotalínunni. Þar verða rafgeymar sem hægt verður að nota. Þeir sem eru með glóðareldsneyti skulu EKKI keyra mótorana upp á malbikinu heldur á; gangsetningarborðum, steypunni á gangsetningarsvæðinu, á grasinu fyrir flugtak eða með því að lyfta módelinu af malbikinu og keyra það upp í a.m.k. 60 cm hæð yfir jörðu. Ef þyrlur verða á svæðinu þá eru flugmenn þeirra beðnir um að tala við
Sverri um þau mál.
Ljósbláu kassarnir eru svæðin sem flugmenn skulu standa á hverju sinni og er miðað við að standa skuli sem næst brautarenda sem í notkun er. Flugmenn skulu vera með aðstoðarmann með sér. Athugið að hægri umferð gildir á brautunum, t.d. ef Heimsendi er í notkun skal módelinu ekið meðfram brautarkantinum sem er á hægri hönd flugmanns sem labbar út eftir og eins þegar módel er á leið að pitti. Ef módel er í akstri út að brautarenda og lending er yfirvofandi skal fjarlægja módelið af brautinn ef þess er kostur.
Eftir að flugi lýkur skal drepið á módeli áður en farið er inn á gangsetningarsvæðið!
Langar einnig að biðja menn um að kynna sér
reglur þær sem gilda á Arnarvelli og þá sérstaklega um loftrýmið.
Klósett verður á svæðinu en ekkert rennandi vatn, það verður staðsett við geymslugáminn sem stendur við hringtorgið. Eins og á öðrum flugkomum þá eru veitingar í boði Flugmódelfélags Suðurnesja. Þeir sem hafa hug á að gista á svæðinu þurfa að staðfesta það við Sverri fyrir kl.18 fimmtudaginn 31.maí nk.
Athugið að ég mun ekki svara símanum fimmtudaginn 31.maí frá kl.11 til 19. Ef þið ætlið að staðfesta á því tímabili hafið þá samband við Magga í síma 861 9314.
Minni einnig á
afmælismatinn á laugardagskvöldið.