Gáta

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Helgi Helgason
Póstar: 80
Skráður: 8. Jún. 2006 21:37:13

Re: Gáta

Póstur eftir Helgi Helgason »

Svona til að sleppa öllu gríni þá giska ég á Fokker D.VIII







Vantaði einn staf
Passamynd
Gaui
Póstar: 3855
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Gáta

Póstur eftir Gaui »

Ég myndi halda það þetta væri eftirlíking af Fokker D VIII
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Sigurjón
Póstar: 86
Skráður: 22. Feb. 2007 00:10:23

Re: Gáta

Póstur eftir Sigurjón »

Alveg rétt. Þetta er flughæf eftirlíking af Fokker D VIII sem er staðsett á Jean Stampe flugsafninu í Antwerpen í Belgíu.
Passamynd
Sigurjón
Póstar: 86
Skráður: 22. Feb. 2007 00:10:23

Re: Gáta

Póstur eftir Sigurjón »

Hvaða flugvéla tegund er þetta og hvernig tengist hún flugsögu Íslands?

Mynd
Passamynd
Steinar
Póstar: 180
Skráður: 8. Jan. 2006 22:47:28

Re: Gáta

Póstur eftir Steinar »

Tja!! Stélið minnir amk á eitthvað?? stélið á Tiger moth og cowlingin á Ögnina???
Always remember you fly an airplane with your head, not your hands.
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Gáta

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Ja þetta er nú ekki erfitt þar sem kennileitin eru margvísleg. Steinar er auðvitað heitur,,, hefur jú á vissan hátt rétt fyrir sér. Kannski er hann að halda aftur af sér því hann veit hvað þetta er.
Maður sér auðvitað arfleifðina frá De Havilland DH82 Tiger Moth sem átti svo sinn forvera í DH 60 Gypsy Moth. Ef einhver efast þá er merki framleiðandans fallega málað á hjólaskeljarnar á þessari.

Þetta er einhver útgáfa af DH83 FoxMoth. Stjórnklefinn er lokaður á þessu eintaki en á öðrum eintökum hefur hann verið opinn. Kannski einhver nútíma kuldaskræfa sem á hana og hefur náð sér í gróðurhús á hana. Kannski af Super CHipmunk?.

Svona dæmi er svo auðvelt að fletta upp á netinu. Hér er annað eintak með opinn hanapitt:
Mynd

Tengingin við íslenska flugsögu er væntanlega gegnum Gypsy-major mótorinn sem knúði ÖGN-ina en ýmis afbrigði af þeim knúðu (yfirleitt?) þessar vélar sem upp eru taldar... ekki satt?
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Gáta

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Bara svona til að halda boðhlaupskeflinu gangandi....

Það er til svo mikið af skrýtnum og skemmtilegum flugvélum.
Hvað haldið þið að þessi fallega vél heiti?

Mynd
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Þórir T
Póstar: 837
Skráður: 17. Ágú. 2004 23:25:55

Re: Gáta

Póstur eftir Þórir T »

Svipar aðeins til Piper PA16, en er sennilega ekki hún, öll einhvernveginn lengri...
Passamynd
Sigurjón
Póstar: 86
Skráður: 22. Feb. 2007 00:10:23

Re: Gáta

Póstur eftir Sigurjón »

Doktor Björn fær ekki fullt hús stiga fyrir sitt svar :-)

Já, þetta er deHavilland D.H. 83 Fox Moth. En þetta er D.H. 83C Fox Moth, smíðuð eftir stríð í Kanada og er upprunalega með lokuðum stjórnklefa. Það er ekki einhver nútíma kuldaskræfa sem setti kanópíuna þarna.

Dr. Björn, og fleiri, fá engin stig fyrir tengingu þessarar flugvélartegundar við íslenska flugsögu.

Árið 1933 kom flugmaður að nafni John Grierson til Reykjavíkur á deHavilland Gipsy Moth flugvél á flotum. Tilgangur ferðar hans var að sanna norðurleiðina til Kanada sem vænlegan kost í flugi. Í flugtaki hlekktist flugvéla hans á og fór á hvolf.

Árið eftir var Grierson aftur á ferð, að þessu sinni á Fox Moth á flotum. Í flugtaki á ytrihöfninni í Reykjavík rakst hann á árabát sem braut vinstri neðri væng vélarinnar. Þar með var endi bundinn á ævintýri þessa breta við að sanna norðurleiðina. Brotið úr vinstri vængnum fyrir utan stífu er nú í vörslu Flugsögufélagsins.

Varðandi myndina sem Dr. Björn sendi inn, verð ég að játa mig sigraðann. Þetta lítur út eins og samsafn af mörgum flugvélartegundum. Mótorinn er 180hp Lycoming, skrokkurinn mynnir á Aeronca Sedan með Piper SuperCub ívafi, gírinn af Taylorcraft og stélið er mér hulin ráðgáta!!
Passamynd
tf-kölski
Póstar: 125
Skráður: 19. Apr. 2007 16:34:21

Re: Gáta

Póstur eftir tf-kölski »

Er þetta Ritter?:S
Driving is for people who can't fly!
Svara