Síða 31 af 53

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 24. Apr. 2009 22:14:01
eftir Sverrir
Vindpokinn var orðinn frekar slitinn eftir síðasta vetur og kominn tími til að gera eitthvað í því. Gunni í stórhættu og formaðurinn leiðbeinir.
Mynd

Nýji pokinn er varla hálfdrættingur á við gamla pokann. ;)
Mynd

Gunni kannar aðstæður.
Mynd

Og leggur á toppinn.
Mynd

Allt að gerast!
Mynd

Allt tilbúið fyrir sumarið. :cool:
Mynd

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 25. Apr. 2009 10:00:46
eftir Gaui
Hvar fenguð þið þennan líka flotta vindpoka? Er Eimskipsmerkingin vísbending?

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 25. Apr. 2009 10:20:08
eftir Sverrir
Jónsver á Vopnafirði eins og aðrir pokar sem við notum, merkinguna má láta gera nánast hvar sem er.

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 25. Apr. 2009 13:48:32
eftir Gaui
Spurningin var: fenguð þið Eimskipafélagið til að borga brúsann?

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 25. Apr. 2009 16:16:23
eftir maggikri
[quote=Gaui]Spurningin var: fenguð þið Eimskipafélagið til að borga brúsann?[/quote]
Já fyrir nokkrum árum á góðæristímum. Við fengum þennan poka sem átti að fara á flugvöll nr. 2 sem var Garðskagaflugvöllur(kem að því nánar seinna og ég held að þú hafir gaman af þeirri sögu, tengist einni vél sem þú ert að smíða Tigermouth). Stærri pokinn fór á gamla völlinn okkar og er ónýtur.
kv
MK

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 25. Apr. 2009 20:46:45
eftir Sverrir
[quote=Gaui]Spurningin var: fenguð þið Eimskipafélagið til að borga brúsann?[/quote]
Óhhh Mynd :P ;) :) :D

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 2. Maí. 2009 19:15:32
eftir maggikri
Viðgerð á vegi að Arnarvelli, og fylling við gám.

Fór í dag með kerru aftan í jeppalinginum ásamt SSM og MOE.

Mynd
Fjórar stútfullar kerrur fóru í fyllinguna
Mynd
Fyllt í holur
Mynd
Eftir fyllingu.
Mynd

Mynd
Völlurinn að verða grænni!
Mynd

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 2. Maí. 2009 20:16:52
eftir Gunni Binni
[quote=maggikri]Viðgerð á vegi að Arnarvelli, og fylling við gám.
Fór í dag með kerru aftan í jeppalinginum ásamt SSM og MOE.
Völlurinn að verða grænni![/quote]
Góðir!
Margar kynslóðir að störfum.
Er þetta ekki það sem er kallað "Suðurnesjagrænt"?
Kveðja
Gunni Binni

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 2. Maí. 2009 20:45:31
eftir Sverrir
Verður það þegar búið verður að dreifa úr sekknum sem ég var að versla í vikunni. :)

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 9. Maí. 2009 15:19:09
eftir maggikri
Flugvallarstjórarnir Guðni Vignir og Gunnar Magnús eru að vinna út á Arnarvelli við völtun og mosaslátt.
Á morgun sunnudag verður sennilega farið í að dreifa áburði á grassvæði sem gjaldkerinn keypti dýrum dómum. Myndir vonandi væntanlegar!

kv
MK