Síða 35 af 60
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 31. Júl. 2014 11:18:13
eftir Gaui
Þeir samskúrkar mínir, Árni Græniskúrkur og Mummi Litliskúrkur, færðu mér gjöf í skúrinn í gær, fallega inn pakkaða í blúndur og tjull:
Þegar ég var búinn að vefja umbúðunum utanaf kom þetta í ljós:
Hmmm? Af hverju eru félaga mínir að gefa mér plástra? Ég fatta það ekki.
Annars var Árni að reyna að maska vélarhlífina á Fokkerinn, en var greinilega ekki að gera það rétt. Litli eftirlitshundurinn sýndi honum réttu handtökin.

Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 7. Sep. 2014 13:43:51
eftir Gaui
Það var málað smá á Grísará í morgun:
Mummi málaði stafi á Borðdúkinn:
Árni furðaði sig á penslinum
Mummi þurfti stundum að lækka sig ögn til að ná niður í Borðdúkinn.
Á meðan sprautaði Árni svart á vélarhlíf

Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 21. Sep. 2014 14:23:53
eftir Árni H
Úti er blámóða eins og almættið sé að fljúga með of ríkan glóðarhausmótor
Þá er best að halda sig innivið og smíða. Hérna eru nokkrar símamyndir frá undanförnum dögum:
Hvað getur farið úrskeiðis þegar Gaui kveikir saman hjólastell? Hátæknislökkvibúnaður kom í fyrir stórtjón!
Stélið á Fokkernum stífað af. Stífurnar virka klunnalegar á myndunum en eru það ekki í raun.
Gert við hilluskemmdir á Me109, sem liggur í salti til betri tíma. Leutnant Gottfried Weiroster fær að hvíla sig enn um sinn í stólnum sínum góða áður en hann fer í loftið undir minni stjórn.
Veðrun á skalavél skoðuð í réttu ljósi. Felumálningin er svo góð að það þarf að leita að vængnum á myndinni en hundurinn er hins vegar í 1:1 og sennilega stærsti hundur landsins!
Eldsneytisflösku rak á fjörur Eyjafjarðar eitt kvöldið
Orrustan um Bretland í undirbúningi - hér er hugað að landvörnum.
Það er sem sagt nóg að gerast þótt rólegt sé á fréttavefnum í augnablikinu!
Kv,
Árni H
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 21. Sep. 2014 14:29:46
eftir maggikri
Hver keyrði svo heim eftir eldsneytisgjöfina

Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 21. Sep. 2014 19:42:11
eftir Gaui
Ég á heima í skúrnum og Mummi er fluttur í göngufæri -- enginn þarf að aka.

Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 22. Sep. 2014 08:31:41
eftir Árni H
Og ég var fjarri góðu eldsneyti - þeir kumpánar myndina í sms til að ergja mig...

Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 22. Sep. 2014 16:31:01
eftir jons
Nei þú misskilur, við erum að gera þetta fyrir þig, svo þér finnist þú vera með okkur þegar þú ert fjarri góðu gamni! Piff ... ergja þig ...
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 28. Sep. 2014 23:38:12
eftir Árni H
Þetta litla vídeó datt inn á símann minn í morgun þegar ég var að prófa litla kínverska gleiðlinsu á honum - hún svínvirkar
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 29. Sep. 2014 18:21:03
eftir Gauinn
Á síma? Flott!
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 30. Sep. 2014 13:51:43
eftir Árni H
Já - ef maður strýkur símunum rétthæris er oft hægt að ná furðugóðum myndskeiðum út úr þeim

Þetta er tekið með svona linsu á símanum:

Ódýrt og skemmtilegt fikt!