Ég geri sjálfur ekki veður út af hjólastelli,
enda er það "oftast nær " alldrei í skala.
Betra er að efri hlutinn sé mjög líkur og stellið komi niður á á réttum tíma.
Gaman er að sjá áhuga ykkar á þessari vél.
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 16. Jún. 2015 23:28:14
eftir Gaui
Sumar vélarhlífar þarf að nota sem grímu:
Hundar finna alltaf besta stað til að liggja á -- fyrir þá sjálfa. Ekkert endilega besta staðinn fyrir okkur Skúrkana:
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 23. Jún. 2015 23:38:44
eftir Gaui
Mummi tekur öryggismálin mjög alvarlega og notar allt sem hægt er til að forðast slysin og vernda heilsuna:
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 26. Jún. 2015 23:24:37
eftir Pétur Hjálmars
Sumir þurfa frosthlíf.
Aðrir þurfa vind og regnhlíf, hvernig líta þær út hjá ykkur ?
Þið eruð svo mikið í spauginu,
eitthvað svar hlítur að vera á takteinum hjá ykkur félagar.
Með besssstuu spaugs kveðju.
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 19. Júl. 2015 14:35:44
eftir Gaui
Bixler lennti í smá klammaríi í Mývatni. Hann var fluttur í gjörgæsludeildina að Grísará og byrjað að gera að sárum hans:
Fyrst þurfti að losa í sundur skemmdu svæðin svo hægt væri að kyssa á báttið:
Hér sést hvernig gjafafrauð er formað til að fylla upp í svöðusár á vinstri flapa:
Aðgerðin virðist hafa heppnast fullkomlega:
Sjúklingurinn er nú í eftirmeðferð og batahorfur eru góðar.
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 30. Júl. 2015 23:29:16
eftir Gaui
Vídeó um hvernig ég sprauta:
fyrri hluti:
seinni hluti:
Þetta verður vonandi einhverjum til gagns eða gleði.
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 31. Júl. 2015 16:15:03
eftir Gaui
Aukaefni:
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 4. Ágú. 2015 16:06:30
eftir gudjonh
Sæll nafni og takk fyrir fróðleikinn. Fór í Slippfélagið. Mér fanst ekki augljóst hvaða málning þetta er sem þú ert að mæla með. Get ég fengið heitði á henni?
Guðjón
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 4. Ágú. 2015 17:54:29
eftir Gaui
Þetta er bara venjuleg innimálning sem þeir eru að selja. Þeir kalla hana Bett. Þeir blanda hvaða lit sem maður vill.