Síða 5 af 53

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 21. Ágú. 2006 22:51:48
eftir kip
Varstu ekki í Cuban8 þegar ég tók efri

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 21. Ágú. 2006 22:56:43
eftir Sverrir
Hehe, ég var nú ekki að reyna að framkvæma neinar sérstakar listflugsæfingar með þig, bara halda þér að skotmarkinu ;)

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 23. Ágú. 2006 10:36:42
eftir Sverrir
Góðir sundmenn óskast til að hjálpa okkur við að tyrfa næstu daga ;)

Mynd

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 23. Ágú. 2006 10:49:08
eftir Þórir T
Hafið Þið Prófað Að Tala Við Örn Arnarson Sundgarp? :-)

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 23. Ágú. 2006 10:52:44
eftir Sverrir
Held hann sé flúinn aftur í Hafnarfjörðinn ;)

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 23. Ágú. 2006 23:10:49
eftir Sverrir
Jæja, hann hékk þurr í kvöld og málarinn okkar leit líka við seinnipartinn.

Mynd


Tveir góðir vinnuþjarkar ræða málin!

Mynd

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 24. Ágú. 2006 22:59:30
eftir Sverrir
Jæja nýtt met, 12 gestir á einu kvöldi, þökkum Munda og fjölskyldu sérstaklega fyrir innlitið :)

Svo litu félagar okkar í Sléttunni við.
Mynd

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 24. Ágú. 2006 23:13:40
eftir HjorturG
Má eitthvað fljúga af vellinum???

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 25. Ágú. 2006 00:31:28
eftir Sverrir
Það er ekkert rosalega mikið pláss fyrir flugmódel á meðan við erum á fullu í framkvæmdum. Fyrir utan mannskap og tæki þá eru líka þökur og rúllur á brautunum svo völlurinn leyfir ekki mikla umferð fram að opnun en menn eru alltaf velkomnir í heimsókn að skoða svæðið, eins og fjölmargir hafa nýtt sér, við erum þarna öll kvöld fram í myrkur enda ekki nema vika eftir! :/

Svo verður ekki skortur á flugtímum 2.september :D

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 27. Ágú. 2006 18:00:59
eftir Sverrir
Innan við vika í formlega vígslu og 800 fermetrar af grasi komnir á. Laugardaginn 2.september kl.17 mun verða
klippt á borðann við hátíðlega athöfn. Í tilefni af því er ætlunin að efna til flugkomu og fá sem flesta módelmenn
á svæðið til að samfagna með okkur, skoða svæðið, sýna sig og sjá aðra.

Von er á 1500 fermetrum af grasi til viðbótar strax eftir helgi svo nóg verður að gera fram að vígslu því það er
alltaf nóg af smærri verkefnum sem bíða.


Séð yfir svæðið
Mynd

Vindpokinn kominn á sinn stað
Mynd

Eitthvað er farið að sjást af grasi
Mynd

Líka hér
Mynd

Horft á Heimsenda
Mynd

Horft að Hlíðarenda
Mynd

Horft út yfir Vatnsenda
Mynd

Spáð í spilin
Mynd

Ekki mikið eftir af gamla flugvallarsvæðinu í Grófinni :(
Mynd