Síða 5 af 9
Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 30. Jan. 2025 12:40:59
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 34
Ég dundaði við stélið í dag. Ég felldi 1,5mm krossvið ofan í afturbrún allra stélflata þar sem stögin eiga að koma. Þessi stög verða virk og halda stélinu á.

- 20250130_095404.jpg (143.4 KiB) Skoðað 13901 sinni
Ég fékk rúllu af hvítu Oratex hjá Tomma og ákvað að klæða vinstra hæðarstýrið. En ég byrjaði á því að saga trimmið af, setti lamir á það og bjó til horn úr prentplötuefni. Þetta kemur ekki til með að virka, en allt í lagi að það líti út fyrir að virka.

- 20250130_120625.jpg (149.44 KiB) Skoðað 13901 sinni

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 31. Jan. 2025 13:21:39
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 35
Ég bætti afturljósinu við hliðarstýrið. Ég boraði gat á rétta (?) staðinn og límdi bút af kolfíber röri í það. Svo sullaði ég P38 í kring, tálgaði það til og pússaði. Ég set svo seinna einhverja peru í þetta til að herma ljósið.

- 20250131_110825.jpg (144.46 KiB) Skoðað 13867 sinnum
Svo klæddi ég hliðarstýrið með Oratex.

- 20250131_120224.jpg (146.03 KiB) Skoðað 13867 sinnum

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 3. Feb. 2025 11:53:01
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 36
Ekki mikið gert i dag. Ég klæddii stélfletina og hæðarstýrin með Oratexi.

- 20250203_105531.jpg (140.27 KiB) Skoðað 13641 sinni

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 6. Feb. 2025 13:27:50
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 37
Ég fékk sendingu frá
Lindinger í Austurríki: M3 kúlutengi úr áli sem ég ætla að nota á vængstífurnar. Nú vantar mig bara heppilegan við í stífurnar.

- 20250206_091839.jpg (138.73 KiB) Skoðað 12756 sinnum
Ég fékk líka nýjan NGH 35cc með hlðarpústi sem ég ætla að festa framan á nefið á módelinu.

- 20250206_092612.jpg (145.03 KiB) Skoðað 12756 sinnum
Hér eru mótorbúkkarnir komnir á mótorkassann og mótorinn boltaður á. Ég boraði í eldvegginn til að boltarnir aftan á mótornum gætu gengið inn í þau og þannig situr mótorinn eins aftarlega og mögulegt er. Athugið að ég þarf að saga úr mótorkassanum til að hljóðkúturinn komist á.

- 20250206_122043.jpg (139.55 KiB) Skoðað 12756 sinnum

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 7. Feb. 2025 13:52:54
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 38
Þetta horn á mótorkassanum þurfti að víkja því að hljóðkúturinn stendur aðeins afturúr mótornum.

- 20250207_094057.jpg (144.57 KiB) Skoðað 12511 sinnum
Ég boraði fyrir styrkingum í mótorbúkkana og límdi nokkra díla í, Sá fremsti gengur inn í eldvegginn.

- 20250207_095317.jpg (142.58 KiB) Skoðað 12511 sinnum

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 8. Feb. 2025 11:56:12
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 39
Hliðar módelsins undir klæðningunni eru formaðar með 1,5mm stálvír sem er límdur upp á krossviðar stóla til að halda honum í réttri hæð.

- 20250208_110903.jpg (134.57 KiB) Skoðað 12494 sinnum
Ég ætla að setja 2mm balsa upp á rönd undir vírinn þar sem hann spannar á milli uppistaða til að hann sé nú örugglega beinn og gefi ekki eftir þegar klæðningin kemur á.

- 20250208_110934.jpg (135.56 KiB) Skoðað 12494 sinnum

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 10. Feb. 2025 12:14:13
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 40
Ég kláraði að setja langböndin á vinstri hliðina. Vegna þess að þau eru bara 1,5mm stálvír, þá skar ég til 10mm breiða planka úr 2mm balsa og límdi undir þau svo þau myndu ekki gefa of mikið eftir þegar dúkurinn kemur á. Ég setti líka bönd í kringum gluggann. Gluggaplastið og dúkurinn koma til með að sitja á þessu.

- 20250210_113721.jpg (136.74 KiB) Skoðað 12478 sinnum
Ég setti fyllingu undir stélið það sem stýrivírarnir eiga að koma og merkti þar sem þeir koma út úr skrokknum.

- 20250210_113731.jpg (139.37 KiB) Skoðað 12478 sinnum

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 11. Feb. 2025 13:03:41
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 41
Stuttur dagur í dag. Upp hafa komið áhyggjur um að stálvírarnir aftur eftir skrokknum séu of þungir og kalli á aukna þyngd í nefinu. Ég vigtaði einn 1000mm x 1,5mm stálvír og vogin sýndi 14 grömm.
Miðað við að mótorinn er um 1.400 grömm fyrir utan rafhlöður, þá ætla ég ekki að hafa mjög miklar áhyggjur af að módelið verði stélþungt.
Strax.

- 20250211_091152.jpg (135.12 KiB) Skoðað 11935 sinnum

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 12. Feb. 2025 12:29:32
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 42
Ég setti vírana á hægri hliðina í dag.

- 20250212_113316.jpg (142.27 KiB) Skoðað 11165 sinnum
Og rétt áður en ég fór heim setti ég festingu fyrir stélhjólastellið á með epoxý lími.

- 20250212_120918.jpg (145.28 KiB) Skoðað 11165 sinnum

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 17. Feb. 2025 12:27:35
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 43
Ég ætlaði að vera mjög duglegur í dag, en rifbrotið kom í veg fyrir það. Það eina sem mér tókst að gera var að setja plaströr í skrokkinn fyrir stýringar í stélið: tog-tog víra fyrir hliðarstýrið, og sitt hvorn teininn fyrir hæðarstýrin.

- 20250217_115212.jpg (145.21 KiB) Skoðað 2206 sinnum
