Síða 5 af 60
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 2. Feb. 2009 15:43:31
eftir Gaui
[quote=ERLINGJ]ugly stik er líka nafn á veiðistöngum hjá ...
http://www.shakespeare-fishing.com/prod ... ugly.shtml[/quote]
Við reynum að vita ekkert um það -- ein dell.... öö ... eitt heilbrigt áhugamál í einu er nóg!
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 2. Feb. 2009 16:02:38
eftir jons
Takk fyrir. Ég hlakka til að sjá kvikindið í loftinu - Gaui er búinn að lofa að taka fyrir mig fyrsta hring, þar sem ég treysti mér ekki alveg í að fljúga Nemó litla alveg strax, ætla að byrja að fljúga litla ljóta trainernum mínum fyrst
[quote=Gaui]Við reynum að vita ekkert um það -- ein dell.... öö ... eitt heilbrigt áhugamál í einu er nóg![/quote]
Úps. Verð ég þá að hætta að teikna, mála, hnýta flugur, skoða stjörnur, hanga í tölvunni og að taka myndir? Er ég annars drekinn?
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 2. Feb. 2009 16:25:52
eftir Sverrir
Ef þú teiknar flugmódel, málar flugvélar, hnýtir flugdreka, skoðar flugstjörnur, hangir á módelsíðum og tekur flugmyndir þá er þetta allt í lagi
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 2. Feb. 2009 17:15:15
eftir ErlingJ
1 Áhugamál Er EKKI Nóg
.............................
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 2. Feb. 2009 20:54:58
eftir jons
[quote=Sverrir]Ef þú teiknar flugmódel, málar flugvélar, hnýtir flugdreka, skoðar flugstjörnur, hangir á módelsíðum og tekur flugmyndir þá er þetta allt í lagi
[/quote]
Close enough!
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 6. Feb. 2009 17:55:24
eftir Gaui
[quote=PattRat]Gæti það verið að Das Ugly Stik sé vinsælasta model allra tíma ?[/quote]
Ef frá eru talin skalamódelin Piper Cub og P51D, þá er Das Ugly Stick hátt uppi á listanum.
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 8. Feb. 2009 13:42:06
eftir Gaui
Ekki minnast á það ógrátandi Sigurður minn -- það er jafnvel í gangi hreyfing til að fá menn frekar í ARFatínsluna en að smíða almennileg módel með sál.
Enívei, eins og sagt er, þá heldur Stikkaraframleiðslan áfram hér á Grísará og Árni Hrólfur er byrjaður að klæða. Hans Stikkari veður fagurblár:
Við vorum að reyna að sannfæra Rúnar um að hans yrði að vera grænn, en ég veit ekki hvort það tókst. Við verðum bara að bíða og sjá.
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 8. Feb. 2009 14:19:17
eftir Sverrir
[quote=Gaui]Við vorum að reyna að sannfæra Rúnar um að hans yrði að vera grænn, en ég veit ekki hvort það tókst. Við verðum bara að bíða og sjá.[/quote]
Ekki spurning
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 14. Feb. 2009 14:23:25
eftir Gaui
Það kom góður gestur í bólskúrinn á Grísará um helgina. Doktor Björn leit inn og spjallaði við FMFA félaga sem ráku inn nefið.
Það var heilmikið „aktivítet“ eins og það er kallað, en lítið hægt að smíða fyrir kjaftagangi.
Björn varð náttúrulega að prófa aldagamla norðlenska hefð og setja vélarhlíf á höfuðið. Okkur finnst Doktorinn hafa framtíð innan kaþólsku kirkjunnar -- Benni - við erum búnir að finna annan í staðinn fyrir þig!
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 20. Mar. 2009 20:49:16
eftir Gaui
Það var skemmtilegt smíðakvöld á fimmtudaginn. Árni Mummi og Rúnar dúlluðu sér, Árni að vísu orðinn ansi frústreraður á hallastýrunum -- það er svo mikið mál að klæða svona flókinn hlut.
Rúnar hélt áfram með Stikkaravænginn -- þetta skrýður áfram hjá honum.
Svo um mitt kvöld fengum við góðan gest. Það var hann Krissi í Kröflu, eða Mývetningurinn. Hann leit við til að fá smá vítamínsprautu. Hann var áður ansi duglegur í módelunum, en það hefur smám saman dalað hjá honum. Vonandi pikkast hann aftur upp og tekur á því.