Síða 5 af 5

Re: CARF Ultra Flash

Póstað: 26. Maí. 2012 02:14:12
eftir Sverrir
[quote=Messarinn]Þetta er flott Sverrir[/quote]
Takk, takk.

Re: CARF Ultra Flash

Póstað: 26. Maí. 2012 10:28:07
eftir Árni H
Snyrtileg viðgerð, Sverrir! Flaugstu í gegnum heilan trjálund frá valdatíð Vigdísar eða hvað?

Re: CARF Ultra Flash

Póstað: 26. Maí. 2012 11:48:08
eftir Sverrir
Nei, þetta virðist vera grjót sem Árni Johnsen missti á heimleið úr gúlaginu! ;)

Hef sterkan grun um að grái grunnurinn hafi verið of dökkur fyrir gulan litinn, þ.e.a.s. ef ég ætla ekki milljón umferðir. Sést best á því að á efra byrðinu er nánast engin litamunur. Látum þetta hins vegar duga í sumar og gerum eitthvað í þessu í vetur. Annars réðst límbandið mitt aðeins á gula litinn, smá æfingar löguðu það að mestu.

Mynd

Mynd

Mynd

Re: CARF Ultra Flash

Póstað: 26. Maí. 2012 13:14:22
eftir lulli
Betra en nýtt og bilar aldrei ;)

Re: CARF Ultra Flash

Póstað: 26. Maí. 2012 18:33:44
eftir Spitfire
Fyrst hún fór svona á grasinu á Tungubökkum er nokkuð ljóst að við púkarnir fyrir westan þurfum að fara með tannbursta á Sandoddann :rolleyes:

Re: CARF Ultra Flash

Póstað: 27. Maí. 2012 00:33:19
eftir Sverrir
Já, hjólahlífalausir glertrefjaskrokkar hafa ekki mikið að gera þar sem hætta er á miklu grjótkasti á góðri ferð.

Re: CARF Ultra Flash

Póstað: 6. Jún. 2012 16:20:32
eftir Sverrir
[quote=Guðjón]FLOTT ER HÚN! Er ekki æðislegt að fljúga henni?[/quote]

Nei, það er geggjað! ;)

Mynd

Re: CARF Ultra Flash

Póstað: 6. Jún. 2012 18:10:04
eftir Guðjón
Já eins og ég sagði; ÆÐISlegt!