Síða 6 af 12
Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 6. Jún. 2023 13:02:57
eftir Gaui
Dagur 50
Ýmis smáverk, aftur og nýbúinn. Meðal þess sem ég gerði var að forma öxulhúsið þannig að það geti setið á sínum stað.
- 20230606_112408.jpg (126.47 KiB) Skoðað 806 sinnum
Og ég setti líka fylliefni á vélrhlífina svo ég geti pússað hana slétta. Næstu daga mun ég pússa skrokkinn og gera hann tilbúinn undir dúkinn.
- 20230606_112809.jpg (112.42 KiB) Skoðað 806 sinnum
Þar sem ég er enn að bíða efir dúknum, þá ætla ég að gera hlé á þessum færslum þangað til hann kemur. Þá mun ég segja frá því hvernig ég klæði og mála módelið.
Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 20. Júl. 2023 13:22:24
eftir Gaui
Dagur 51
OK, þetta er ekki dagur 51, heldur 51. dagurinn. þar sem ég gerði hlé á þessu frá 6. júní. En, nú er ég búinn að fá dúkinn.
- 20230720_103006.jpg (122.77 KiB) Skoðað 728 sinnum
Ég pantaði hann frá verslun í Englandi þann 3. júní og borgaði uppsett verð í gegnum Paypal. Samkvæmt göglum sem fylgdu með virðaist búðin hafa þurft hálfan mánuð til að sækja rúlluna til J.Perkins, því að pökkunarnótan er dagsett 20. júní. Þegar ég hafði ekki heyrt neitt í pakkanum í heilan mánuð, þá hringdi ég í búðina þann 4. júlí og spurði hvort þeir hefðu rakningarnúmer á hana. Þeir sendu mér þannig númer fljótlega, en þar kom í ljós að pakkinn fór ekki frá þeim fyrr en þann dag. Gleymdi þessi virta verslun að senda mér pakkann þar til ég hringdi?
Hvað um það, þá flakkaði pakkinn á milli Englands, Hollands og Þýskalands í nokkra daga þar til hann komst loks um borð í flugvél til Íslands frá Köln. Hann komst svo í mínar hendur 17. júlí.
Þá var komið að því að byrja að klæða. Dúkurinn dekkar vængina með smá afgang sem hægt er að nota til að klæða hallastýrið.
- 20230720_103633.jpg (140.21 KiB) Skoðað 728 sinnum
Og hér er neðra byrði efri vængs hægra megin komið á ásamt hallastýrinu. Oratex er frábært. Það er líka gott að nota lóðbolta til að bræða göt þar sem au þurfa að vera.
- 20230720_121918.jpg (148.03 KiB) Skoðað 728 sinnum
Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 21. Júl. 2023 13:51:34
eftir Gaui
Dagur 52
Klæddi neðan á tvo vængi í dag. Þetta tekur dálítinn tíma að klæða. Og ekkert smá af efni: til að dekka einn væng þarf ég að klippa út tvo búta sem eru 450 mm breiðir og 950 mm langir. Efni sem þarf ofan og neðan á fjóra vængi er 7600 mm. Þá á ág 2400 mm eftir til að klæða skrokkinn og stélið. Tæpt, en ætti að vera í lagi því hluti af skrokknum er ekki klæddur með dúk.
- 20230721_122026.jpg (148.84 KiB) Skoðað 708 sinnum
Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 25. Júl. 2023 13:04:01
eftir Gaui
Dagur 53
Og enn er klætt. Það sem klippt er af þegar vængklæðningin er skorin, passar nákvæmlega á hallastýrin.
- 20230724_100614.jpg (118.87 KiB) Skoðað 685 sinnum
Bútar fyrir vængina.
- 20230725_102625.jpg (153.34 KiB) Skoðað 685 sinnum
og hér eru þrír vængir tilbúnir og sá fjórði bíður. Þetta tók allan morguninn.
- 20230725_120544.jpg (136.93 KiB) Skoðað 685 sinnum
Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 27. Júl. 2023 13:35:06
eftir Gaui
Dagur 54
Stélflöturinn og hæðarstýrin klædd.
- 20230727_101149.jpg (156.24 KiB) Skoðað 659 sinnum
Vængmiðjurnar þurfa smá klæðningu og hér er gott að nota afganga sem ekki er hægt að nota annars staðar.
- 20230727_114609.jpg (151.99 KiB) Skoðað 659 sinnum
Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 28. Júl. 2023 13:06:52
eftir Gaui
Dagur 55
Enn er klætt, og nú er það skrokkurinn. Athugið að skrokkurinn er ekki alklæddur. Það er ekki klætt á krossviðinn. Ég þarf að pennsla lakki á hann (gólflakk ?? ) áður en ég mála hann með PC-10.
- 20230728_112816.jpg (143.45 KiB) Skoðað 650 sinnum
Til að styrkja samskeytin þar sem klæðningin liggur upp á krossviðinn, skar ég 5mm ræmur af 0,4mm krossviði og límdi á klæðninguna.
- 20230728_115949.jpg (148.26 KiB) Skoðað 650 sinnum
Hér er einhvers konar lok, líklega geymsla fyrir föggur flugmannsins.
- 20230728_121819.jpg (115.93 KiB) Skoðað 650 sinnum
Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 29. Júl. 2023 19:04:17
eftir Gaui
Dagur 56
Nú eru allir fletir og stýri komin með klæðningu og þá þarf að búa til saumana. Ég reyni ekki að sauma í raunveruleikanum, heldður "feika" þetta, eins og sagt er. Fyrst rífur maður niður helling af ræmum, 5mm breiðar í þessu tilfelli.
- 20230729_094140.jpg (116.61 KiB) Skoðað 636 sinnum
Svo notar maður straujárn á lágum hita til að festa þessar ræmur ofan á rifin. Hér er stélflöturinn.
- 20230729_094150.jpg (112.91 KiB) Skoðað 636 sinnum
Hér er þessi ræma komin á öll stýrin.
- 20230729_111355.jpg (132.66 KiB) Skoðað 636 sinnum
Ræmur þarf líka á öll vængrif, bæði hálfrif og fullstór.
- 20230729_112500.jpg (125.3 KiB) Skoðað 636 sinnum
Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 31. Júl. 2023 13:02:30
eftir Gaui
Dagur 57
Fleiri ræmur settar á rifin. Þetta er frekar tímafrek aðgerð og mér tókst bara að klára tvo vængi.
- 20230731_112440.jpg (142.19 KiB) Skoðað 620 sinnum
Ég keypti dollu af parkett lakki og bar á allan krossvið sem verður málaður frekar en klæddur með dúk.
- 20230731_093337.jpg (151.6 KiB) Skoðað 620 sinnum
Oh hér er skrokkurinn málaður með parkett lakki.
- 20230731_120033.jpg (141.44 KiB) Skoðað 620 sinnum
Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 1. Ágú. 2023 12:41:53
eftir Gaui
Dagur 58
Þrjár umferðir af parkettlakki komnar á krossviðinn og allar ræmur á rifin, svo að nú er tíminn kominn til að "sauma". Hér sést hvernig ég geri þetta. Ég merki bilið á milli saumanna (15 mm) á gut málaralímband og legg það við hliðina á ræmunni. Gult trélím (má líka vera hvítt) fer í lítinn brúsa með sprautunál, sem notaðaur er í iðnaði til að setja olíu á nákvæmlega fyrirskipaða staði. Ég kreysti svo límið á ræmuna od dreg það til svo að saumurinn myndist.
- 20230801_101112.jpg (130.21 KiB) Skoðað 608 sinnum
Hér sést betur hvernig þetta leggur sig. Þegar límið þornar, þá er hægt að leggja breiðari ræmu yfir og strauja hana niður.
- 20230801_112913.jpg (124.5 KiB) Skoðað 608 sinnum
Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 2. Ágú. 2023 13:00:33
eftir Gaui
Dagur 59
Meiri "saumar"
- 20230802_105155.jpg (157.58 KiB) Skoðað 601 sinni