Síða 6 af 17
Re: Vefmyndavélar af módelflugvöllum
Póstað: 23. Feb. 2014 02:46:48
eftir Pétur Hjálmars
Hugmynd stjjórnarinnarinnar um þessa myndavél er frábært framtak.
Maður sér þá hvenær maður vill mæta, og hvenær ekki.
kv. P.Hj.
Re: Vefmyndavélar af módelflugvöllum
Póstað: 23. Feb. 2014 10:50:24
eftir Agust
Áður er ég tek prufuuppsetninguna á myndavélinni niður þá er hér ein mynd úr henni. Eins og sjá má þá er upplausnin þokkalega góð. (Smella á mynd til að stækka).
Myndatakan verður væntanlega stillt á 10 eða 15 mínútur milli mynda. Það er gert til að minnka kostnað við að senda myndirnar yfir á Internetið.
Takið eftir að neðst eru upplýsingar um rafhlöðuspennu, hitastig (upplausn er þó aðeins 5°), dagsetning og tími.
Þetta er sem sagt á réttri leið

Re: Vefmyndavélar af módelflugvöllum
Póstað: 23. Feb. 2014 20:53:57
eftir Agust
Jæja, nú er síminn tengdur internetinu um símakerfið. Ég nota til bráðabirgða mitt eigið NOVA frelsiskort. Ég nota 2G frekar en 3G þar sem orkunotkun símans verður þá minni. Það skiptir auðvitað engu máli þó myndirnar séu örlítið lengur að skila sér á netið. Munurinn er fáeinar sekúndur.
Nú get ég farið með símann hvert sem er og skilið hann eftir. Með nokkurra mínútna millibili sendir hann myndir á vefsíðuna. Flott njósnatæki

.
Nú er bara eftir að koma símanum fyrir í heppilegum umbúðum og útbúa aflgjafa 12V -> 4,2V sem heldur rafhlöðu símans fullhlaðinni. Svo er auðvitað eftir að koma rafmagnsmálunum á Hamranesinu í gagnið.
Re: Vefmyndavélar af módelflugvöllum
Póstað: 23. Feb. 2014 21:27:05
eftir Flugvelapabbi
Sæl Agust,
Ja þetta lofar goðu, upplausnin er alveg agæt og ætti að nytast öllum felögum okkar agætlega
hafðu bestu þakkir fyrir að leiða þetta mal
kv
Einar Pall
Re: Vefmyndavélar af módelflugvöllum
Póstað: 23. Feb. 2014 21:34:39
eftir einarak
Þetta er snilld!
Re: Vefmyndavélar af módelflugvöllum
Póstað: 24. Feb. 2014 03:27:23
eftir Björn G Leifsson
Hvernig komumst við í sjónfæri við myndirnar? Á fréttavefnum?
Re: Vefmyndavélar af módelflugvöllum
Póstað: 24. Feb. 2014 06:40:17
eftir Agust
Enn sem komið er hlaðast myndirnar hér niður:
http://www.opensmartcam.com/index.php?cam=agust
(Ekki er alltaf kveikt á símanum núna, þannig að myndir geta verið gamlar).
Þetta er ókeypis svæði sem tengt er mínu nafni, en auðvitað væri hægt að stofna svona svæði í nafni Þyts. Þarna birtist alltaf síðasta myndin og hægt er að skoða allmargar nýlegar sem raðast í möppur.
Sverrir ætlar að vera okkur innanhandar með að útbúa síðu fyrir myndir frá flugvöllum landsins.
Á netinu er hægt að finna kóða sem hægt er að nota sem grunn að slíku á eigin vefþjóni.
Best er ef vefsíðan birtir alltaf nýjustu myndina, en hefur t.d. myndir síðastliðinna 5 daga aðgengilegar. Það væri ákveðið öryggi í slíku.
Sjá nánar hér
Re: Vefmyndavélar af módelflugvöllum
Póstað: 24. Feb. 2014 10:30:39
eftir Agust
Einfaldasta aðferðin til að birta myndirnar á sameiginlegri vefsíðu er að hver klúbbur stofni ókeypis 50 Mb svæði hjá
www.opensmartcam.com, og síðan verði gerð einföld vefsíða með iFrame gluggum að þessum svæðum.
Bara sísona fyrir hvern klúbb:
Útkoman á prufuvefsíðu er þá svona:
http://www.agust.net/rc/webcam/
Þarna er líka aðgangur að Gallery með eldri myndum.
-
Sem sagt, þetta er allt saman gert samkvæmt
KISS meginreglunni sem tengist fluginu órjúfanlegum böndum:
http://en.wikipedia.org/wiki/KISS_principle
https://www.google.is/search?q=kiss+kee ... 1&bih=1047
Re: Vefmyndavélar af módelflugvöllum
Póstað: 24. Feb. 2014 13:09:52
eftir Vignir
[quote=Vignir]3) HLEÐSLUSTÝRING
Ég get útvegað hjá fyrirtæki sem ég starfa hjá þessa hleðslustýringu og klúbburinn fengi hana á 4500kr
Þetta er 5A útgáfan. BlueSolar 12/24-PWM 5A
http://www.victronenergy.com/upload/doc ... -%20EN.pdf ef menn hafa áhuga.[/quote]
Ég skal útvega þessa hleðslustýringu klúbbnum að kostnaðarlausu.
Látið mig bara vita hvenær þið viljið fá hana.
Kveðja
Vignir V.
Re: Vefmyndavélar af módelflugvöllum
Póstað: 24. Feb. 2014 15:21:16
eftir Agust
Þetta er frábært Vignir.