[quote=Gaui]En elsku vinur ekki skemma hana með því að troða mótor á hana. Sviffluga á ekki að hafa mótor![/quote]
Bíddu, bíddu hvaða mótorblammeringar eru þetta?
Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu
Póstað: 7. Sep. 2012 17:13:03
eftir Sverrir
Nei, nei engar áhyggjur, þetta mun gerast hvað úr hverju!
Svona til gamans þá má geta þess að skrokkurinn er úr níðsterku, en um leið aðeins þyngra, efni sem heitir Ferran. Þetta töfraplastefni þarf að „flambera“ ef ætlunin er að mála það en einnig er það hitað til að ná beyglum úr því. Á vídeóinu hér fyrir neðan bognar skrokkurinn ansi mikið án þess að brotna og eftir smá velgingu þá var hann eins og nýr á eftir.
Hér er svo öllu hefðbundnara flug.
Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu
Póstað: 7. Sep. 2012 22:03:29
eftir maggikri
Kíkti við í hreiðrinu, á leið minni í Reykjaneshöllinatil að skoða með inniflugið. Var enginn í hreiðrinu.
Jú þarna er unginn! að vinna í Sagittunni.
kv
MK
Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu
Póstað: 8. Sep. 2012 20:39:49
eftir Sverrir
Þjóðverjarnir voru ekkert að stressa sig á servófestingum en Gústi átti þetta líka fína vinkiljárn sem var sagað niður í heppilegar einingar. Rafhlaðan kemur svo fremst í nefið ásamt um 100 gr af blýi. Afsakið snúrufarganið, það verður gengið betur frá því þegar rafhlaðan kemur í fulla vinnu.
Og hér er gripurinn klár í slaginn eftir fyrstu áframsvif sín á flatlendi en það er svo aftur á móti önnur saga af hanginu!
Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu
Póstað: 9. Sep. 2012 00:16:10
eftir lulli
Alveg ertu nú magnaður Sverrir þegar þú kveikir á stóradrifinu.
Til hamingju með þennann kapítula (að vera kominn í Svifflugið líka:)
og falleg er hún Sagitta,,nafnið minnir reyndar á Birgitta.
Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu
Póstað: 9. Sep. 2012 01:08:01
eftir Sverrir
Takk, takk, annars ert þú rúmum áratug of seinn með þá kveðju gamli minn, ég hóf minn feril á síðustu öld!
Var sko níundi á Íslandsmeistaramótinu í F3B sumarið 2000!
Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu
Póstað: 9. Sep. 2012 01:25:18
eftir Ágúst Borgþórsson
Betra seint en aldrei. En til hamingju með Sagittu
Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu
Póstað: 9. Sep. 2012 09:16:56
eftir Árni H
Til hamingju með að vera kominn aftur í svifflugið! Þetta eru skemmtilega "landbúnaðarlegar" servófestingar
Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu
Póstað: 9. Sep. 2012 09:33:08
eftir Gaui
[quote=Sverrir]Þjóðverjarnir voru ekkert að stressa sig á servófestingum...[/quote]
Það er vegna þess að þegar þessar flugur komu fram fylgdu sérstök box og grindur með stýringum til að festa servó á svona staði.
Sumt hefur ekki batnað með tímanum !
Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu
Póstað: 9. Sep. 2012 13:16:12
eftir maggikri
[quote=Sverrir]Takk, takk, annars ert þú rúmum áratug of seinn með þá kveðju gamli minn, ég hóf minn feril á síðustu öld!
Var sko níundi á Íslandsmeistaramótinu í F3B sumarið 2000!