Síða 6 af 16

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 13. Nóv. 2012 10:05:04
eftir Gaui
[quote=Sverrir]Loftbremsa komin í annan vænginn.[/quote]

Sýndu okkur hvernig þessi búnaður virkar.

:cool:

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 13. Nóv. 2012 10:29:59
eftir Sverrir

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 14. Nóv. 2012 01:01:45
eftir Sverrir
Sleppikrókurinn kominn í gagnið.
Mynd

Innri helgidómurinn.
Mynd


Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 14. Nóv. 2012 20:49:52
eftir Steinþór
ABS Flott .

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 15. Nóv. 2012 01:14:37
eftir Sverrir
Takk, takk.

Fullt af smotterí á dagskránni í kvöld, stífun hallastýra sést hér.
Mynd

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 16. Nóv. 2012 00:49:12
eftir Sverrir
Nú var loksins komið að stóru stundinni, vinna við húfuna á vélinni.

Fyrst voru rörin glóðuð(e. annealing) til að mýkja þau.
Mynd

Í myrkruðu herbergi viljum við rétt svo sjá daufan rauðan lit.
Mynd

Svo voru þau beygð í rétt form og haldið á sínum stað.
Mynd

Þar sem það var mögulegt þá setti ég smá járntein inn í samskeytin (sviðsett mynd).
Mynd

Voila, hér er hún klár fyrir frekari vinnu, svindlaði örlítið á bakhliðinni og notaði heil rör í staðinn fyrir að hafa hvern legg í þrennu lagi en það kemst engin að því! ;)
Mynd

Á myndinni sem Maggi póstaði er ég að silfurkveikja tvo parta saman sem seinna verða hluti af læsingunni. Það gerði ég svo þeir dyttu ekki í sundur þegar ég lóðaði önnur samskeyti saman, silfrið er jú með talsvert hærra bræðslumark en tinið.

Mynd

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 16. Nóv. 2012 08:10:48
eftir Gaui
Ég vissi það, Sverrir er með ofurkrafta -- geisla augu.

Mynd

:cool:

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 16. Nóv. 2012 09:32:43
eftir Sverrir
Ussssssss!!! ;)

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 16. Nóv. 2012 14:54:24
eftir Björn G Leifsson
Flottur gangur í þessu og skemmtilegt módel. Hvernig er það, kveiktirðu grindina saman á hornunum? Nægði þá álpappírinn til að verja viðinn ??

Svo fór ég að velta þessu fyrir mér með að glóða (annealing) látún (brass) og hvort hægt væri að herða það aftur. Fór því í smá veraldarvefreið.
Samkvæmt því sem ég fann þá harðnar látún ef maður lætur það kólna hægt en mýkist við að kæla snöggt, öfugt við járn og stál. Þetta vissi ég ekki.

Ég sé að þú ert með flúx-húðaða silfurlóðstöng eins og sumir nota í stærri kveikingar t.d. boddíviðgerðir. Geri ráð fyrir að þú þurfir að mylja húðina af við svona smátt og nota krem á efnið, eða?

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 16. Nóv. 2012 15:40:28
eftir Gaui
Ég hef notað þessar sömu stangir við silfurkveikingu. Flúx húðin bráðnar yfir verkið og virkar mjög vel. Besta form á þessu, raunar.

:cool: