Síða 7 af 7

Re: Nýtt super close-up

Póstað: 18. Nóv. 2012 23:45:36
eftir Björn G Leifsson
Ég hélt þetta væri úr Kristjánsbakaríi :P :D

Re: Nýtt super close-up

Póstað: 18. Nóv. 2012 23:49:19
eftir Messarinn
Hahaha góður Björn

Re: Nýtt super close-up

Póstað: 9. Des. 2012 15:41:45
eftir Gaui
Enn ein gátan. Nú var Mummi að búa svolítið til. Hvað ætli þetta sé?

Mynd

:cool:

Re: Nýtt super close-up

Póstað: 11. Des. 2012 17:19:23
eftir Björn G Leifsson
Huh, er enginn sem þekkir svona spiroliflator?

Það sem vekur athygli mína er þetta unaðslega balsaryk sem þarna sést.

Re: Nýtt super close-up

Póstað: 11. Des. 2012 23:22:18
eftir Gaui
Já, balsarykið er alls staðar.

Set mynd af fyrirbærinu um leið og Mummi er búinn að mála það.

:cool:

Re: Nýtt super close-up

Póstað: 21. Des. 2012 13:15:24
eftir Gaui
Það gat enginn ímyndað sér hvað Mummi var að búa til, svo hér kemur mynd að fyrirbærinu:

Mynd

Þetta eru vængljósin á Birddog :)

Þeir sem vilja fá nánari skýringu á smíðinni verða að tala við Mumma. Hann notaði nebbnilega undarlegt efni í ljósin!

:cool:

Re: Nýtt super close-up

Póstað: 21. Des. 2012 13:47:33
eftir Agust
Hverslags ebbni notaði Mummi?

Mér sýndist þetta vera silfurhúðuð spóla eins og maður notaði í VHF radíóið í gamla daga. Lýsir spólan?

Re: Nýtt super close-up

Póstað: 21. Des. 2012 14:58:40
eftir jons
Þetta er ferns konar ebbni.

Spólurnar góðu eru uppvafðir vírar og lýsa því miður ekki. Utan um spólurnar koma plasthausar gerðir úr hylkjum utan um Strepsils hálstöflur. Liggjandi utan á því eru grænmálaðar plastplötur. Utan um allt krappið er síðan glæra (gamla góða skólaglæran eins og notuð var með myndvörpunum í gamla daga), klippt til og límd utan um þetta.

Þetta verður vonandi fjarska-fallegt.