Jæja.. það varla hægt að draga þetta meira.
Sem sagt:
Carf Ultra Flash og Jet Cat P120 turbine.
Meistari Sverrir fór strax í það að yfirfara þotuna og dæma um lofthæfi hennar:
Þó að þotan sé búin að vera í flota Ali og hann mjög ánægður með hana þá er fátt sem fer fram hjá Sverri og fann nokkur atriði sem mætti betrum bæta.
* Betri festing á lúgu við vængtak sett í:
* Hlíf var sett utan um snúru í kerti til að fyrirbyggja að hún gæti skorist í sundur á carboninu:
* Servo snúrur fyrir hæðarstýri voru óþarflega nálægt túrbínu pípunni og voru þær því leiddar að einungrun og skilrúm sett á milli:
Eftir þessar "lagfæringar" fékk þotan að fara upp í hillu og bíða þess að vera flogið í íslenskri lofthelgi:
Svar við getrauninni er því þetta:
A) Afhverju er svona gaman að sitja á þessum kassa: Af því að maður getur það, hann er svo sterkur.
B) Hvað er í kassanum:
- Spektrum DX8
- Ultra Flash með Jetcat p120
- Pull-Over Vængpokar
- Sæng
- Svampar
Hr. Einar Ásgeir Kristjánsson var með "réttasta" svarið og er því sigurvegarinn.
Hann fær því að fara á árshátið Tollstjóra og fær hann að sitja til borðs með þessum manni, klæðnaður er " casual- uniform":
Að lokum er nokkrar myndir af þessari nýjustu þotu landsmanna sem teknar voru á erlendri grundu.
Það má geta þess geta að Landhelgisgæslan reyndi mikið að fá að opinbera sitt nýja varðskip á sama tíma og nýjasta þota landsmanna væri opinberuð. Því var hafnað.
Kveðja,
Ingólfur