Síða 7 af 9
Re: Super Stearman smíði
Póstað: 28. Sep. 2006 22:43:13
eftir Gaui
Jæja, ég hafði mig loks í að balgvanísera Stearmanninn. Hér sést hve smiður er forviða að módelið balgvaníserar á 5 1/2 tommu nákvæmlega eins og það átti að gera.
Á meðan ég var að þessu fór Diddi (kip) að fikta í stélinu á Stearman og uppgötvaði að "vírarnir" á stélinu hljómuðu skemmtilega. Diddi er lagviss maður og var ekki lengi að finna lag sem passaði. Prófið að hlusta hér:
http://www.flugmodel.is/Video/diddi-spilar.avi
Skjáumst
Re: Super Stearman smíði
Póstað: 28. Sep. 2006 23:33:13
eftir Helgi Helgason
Verður KIP ekki að versla gripinn og svo ´ser hann um skemmtunina á leikskólum landsins um næstu jól?;)
Bara smáhugmynd
Re: Super Stearman smíði
Póstað: 29. Sep. 2006 09:59:28
eftir Árni H
Álftagerðisbræður hvað?
Re: Super Stearman smíði
Póstað: 29. Sep. 2006 10:54:36
eftir Sverrir
8.5 á S-skalanum Gaui
Re: Super Stearman smíði
Póstað: 29. Sep. 2006 11:27:38
eftir Björn G Leifsson
Á að fljú'enni??
Ö... áður en seld meina ég...
Re: Super Stearman smíði
Póstað: 29. Sep. 2006 16:31:32
eftir Gaui
Dr Björn: Mér skilst á Þresti að testflug muni fara fram.
Sverrir: Hvað er S-skalinn?
Re: Super Stearman smíði
Póstað: 29. Sep. 2006 18:40:47
eftir Sverrir
Hélt þú myndir eftir því þegar ég fór að gráða bros og grettur hjá þér í sumar
Minntu mig á að segja þér frá þessu í fyrramálið, þ.e.a.s. ef það verður flugfært niður á Melum annars kemurðu bara í kaffi upp á Fell.
Re: Super Stearman smíði
Póstað: 29. Sep. 2006 22:21:25
eftir kip
Þó það verði norðaustan 10 hnútar, bara ef það helst þokkalega þurrt, þá fer Giles í loftið á morgun
Ég ræsi þig Sverrir kl 09:30
Re: Super Stearman smíði
Póstað: 30. Sep. 2006 01:51:41
eftir Sverrir
Verð örugglega vaknaður um 7, ég er með 6 vekjaraklukkur hérna :/
Re: Super Stearman smíði
Póstað: 30. Sep. 2006 14:08:37
eftir kip
Djö var kalt áðan, ég hitti Gauja áðan og það ætla allir að fjölmenna í fyrramálið á melana.
Núna er Knútur hjá sér heima að brjóta alla sparigrísina og safna fyrir yak