Síða 7 af 16
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 16. Nóv. 2012 16:39:13
eftir Sverrir
[quote=Björn G Leifsson]Flottur gangur í þessu og skemmtilegt módel. Hvernig er það, kveiktirðu grindina saman á hornunum? Nægði þá álpappírinn til að verja viðinn ??
Svo fór ég að velta þessu fyrir mér með að glóða (annealing) látún (brass) og hvort hægt væri að herða það aftur. Fór því í smá veraldarvefreið.
Samkvæmt
því sem ég fann þá harðnar látún ef maður lætur það kólna hægt en mýkist við að kæla snöggt, öfugt við járn og stál. Þetta vissi ég ekki.
[/quote]
Takk, álpappírinn dugði fínt enda tekur ekki langan tíma að ná hitanum upp með svona lampa.
Usss, þú átt nú á hættu að verða sviptur titlinum með svona staðhæfingum!
Þetta er einfaldlega rangt, það skiptir ekki máli hvort þú lætur látúnið kólna hægt eða snöggt, það verður alltaf mýkra! Ég einmitt loftkældi það í gær þar sem mér lá ekkert á og óþarfi að fara að standa í því að þurrka það líka.
Látún harðnar bara við vinnslu, beygingu, hömrun o.s.frv. Það var t.d. alveg á mörkunum að ég þyrfti að mýkja það aftur þegar ég var að beygja afturstangirnar.
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 17. Nóv. 2012 00:55:26
eftir Sverrir
Dundaði mér við læsinguna í dag, lúðurinn var glóðaður nokkrum sinnum og þaninn út.
Voila, get þó ekki gengið frá þessu alveg strax.
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 17. Nóv. 2012 12:46:24
eftir Spitfire
Smá fróðleikur um afglóðun á áli:
Aðferðin sem frændi beitir, að myrkva herbergið til að sjá litabreytingun á málminum við hitun, virkar vel með nánast alla málma.
En ekki ál. Sá eðalmálmur glóir ekki þrátt fyrir hitun (verður kanske ögn mattari á lit), og áður en maður veit af, kvikindið orðið fljótandi og lekur út um allt.
En sem betur fer er til skíteinföld aðferð til að sjá hvort álið sé búið að ná réttu hitastigi til að teljast afglóðað. Og hitamælirinn er enn einfaldari: smá spítubútur t.d. furulisti er allt sem þarf.
Aðferðin er semsagt sú að hita álið örstutta stund með góðum blússlampa, færa blússlampann frá, og strjúka spítukubbnum yfir álið. Þegar spítukubburinn skilur eftir sig svört strik á álinu þá er málmurinn búinn að ná réttu hitastigi til að teljast afglóðaður. Einfalt ekki satt?
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 17. Nóv. 2012 12:57:48
eftir einarak
[quote=Spitfire]Smá fróðleikur um afglóðun á áli:
Aðferðin sem frændi beitir, að myrkva herbergið til að sjá litabreytingun á málminum við hitun, virkar vel með nánast alla málma.
En ekki ál. Sá eðalmálmur glóir ekki þrátt fyrir hitun (verður kanske ögn mattari á lit), og áður en maður veit af, kvikindið orðið fljótandi og lekur út um allt.
En sem betur fer er til skíteinföld aðferð til að sjá hvort álið sé búið að ná réttu hitastigi til að teljast afglóðað. Og hitamælirinn er enn einfaldari: smá spítubútur t.d. furulisti er allt sem þarf.
Aðferðin er semsagt sú að hita álið örstutta stund með góðum blússlampa, færa blússlampann frá, og strjúka spítukubbnum yfir álið. Þegar spítukubburinn skilur eftir sig svört strik á álinu þá er málmurinn búinn að ná réttu hitastigi til að teljast afglóðaður. Einfalt ekki satt?
[/quote]
Og fjandans kúnst að sjóða það því maður veit aldrei hversu heitt það er orðið
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 17. Nóv. 2012 13:17:55
eftir Messarinn
Þetta með spítuna er allveg að virka.
Ég var einu sinni að bræða ál í deiglu og þrýstisteypa því í mót. þegar álið var orðið fljótandi þá var það ljósrautt á litin. það sést aðeins í stangirnar þarna á bakvið
Kv GH
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 17. Nóv. 2012 23:53:32
eftir Sverrir
[quote=Spitfire]En sem betur fer er til skíteinföld aðferð til að sjá hvort álið sé búið að ná réttu hitastigi til að teljast afglóðað.[/quote]
Það má líka taka hefðbundið sápustykki og draga eftir álinu og byrja svo að hita, um leið og sápan verður svört er álið tilbúið.
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 18. Nóv. 2012 09:05:13
eftir Björn G Leifsson
[quote=Sverrir]
Usss, þú átt nú á hættu að verða sviptur titlinum með svona staðhæfingum!
Þetta er einfaldlega rangt....[/quote]
Hehe... Þetta var nú það sem Gúgel frændi benti mér fyrst á að lesa og sagt vera upp úr kennslubók í málmsmíðum svo ég fór ekki mikið lengra í það skiptið. Wikipedia er frekar óskýr um málið en ég fann loks
sæmilega umræðu um þetta hjá áhugamönnum um "Model Engineering". Minnir mann á að alltaf skoða sig betur um á vefnum og kafa dýpra.
Látún mýkist sem sagt við glóðun en herðist svo aftur annað hvort við vinnslu (völsun, hömrun t.d.) eins og þú nefnir. En það kemur líka fram að það harðnar bara af sjálfu sér með tímanum svo maður þarf í raun ekki að gera neitt til þess.
Hins vegar getur látún orðið of stökkt með tímanum og er þess vegna ekki notað þar sem það getur brotnað vegna titrings til dæmis.
Alltaf lærir maður meir og meir.
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 18. Nóv. 2012 22:49:42
eftir Sverrir
[quote=Björn G Leifsson]Wikipedia er frekar óskýr um málið...[/quote]
Tja, fer það ekki bara eftir því
hvað þú skoðar.
[quote=
http://en.wikipedia.org/wiki/Heat_treating]However, most non-ferrous metals, like alloys of copper, aluminum, or nickel, and some high alloy steels such as austenitic stainless steel (304, 316), produce an opposite effect when these are quenched: they soften.[/quote]
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 18. Nóv. 2012 22:55:19
eftir Sverrir
Ótrúlegt hvað smá grunnur getur breytt miklu.
Hallastýrin að detta á sinn stað.
Svo er bara að bíða eftir að límið þorni á horninu.
Re: 33% Kaiser Ka-3
Póstað: 19. Nóv. 2012 20:35:13
eftir Messarinn
Má ég Sverrir benda aaaaaðeins á eina síðu um hitun á áli plííís
hún er hérna
http://www.avcorp.com/heat-treatment-of-aluminum.asp
Kv GH
P.s þetta er geggjað flott hjá þér. Hlakka til að sjá hana klára