Gáta

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Offi
Póstar: 348
Skráður: 28. Nóv. 2006 22:23:21

Re: Gáta

Póstur eftir Offi »

Já, þetta er bölvaður rembingur. Hér er aðeins fjallað um blessað G-ið og hvernig menn rembast:
http://www.youtube.com/watch?v=8ea6AGQaAs8

Og þessi er klassískur:
http://www.youtube.com/watch?v=aaDTk0ArbBE

Jú, og þessi:
http://www.youtube.com/watch?v=M9A56nuxte8
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Passamynd
Sigurjón
Póstar: 86
Skráður: 22. Feb. 2007 00:10:23

Re: Gáta

Póstur eftir Sigurjón »

[quote=Björn G Leifsson]Er alltaf gefin upp að vera tveggja sæta. Breitling vélin er þó augljóslega eins manns útgáfa.[/quote]
Breitling vélin er í raun tveggja sæta. Í nýlegri útgáfu af, að ég held, Todays Pilot, er grein um Nigel Lamb og þáttöku hans í Red Bull. Þar er meðal annars inskotsgrein þar sem talað er við flugvirkjan á vélinni (sem meðal annars hefur þann skelfilega starfa að fljúga henni á milli staða ;) ). Þar kemur fram að vélinni er breytt í single seater fyrir hverja keppni, en þess á milli er hún tveggja gata útgáfu og notuð til að bjóða upp á "reward rides" (veit ekki alveg hvernig á að íslenska þetta) fyrir starfsfólk Breitling með Mr. Lamb sem flugmann.
Passamynd
Sigurjón
Póstar: 86
Skráður: 22. Feb. 2007 00:10:23

Re: Gáta

Póstur eftir Sigurjón »

Hvaða flugvél er þetta?

Mynd

Ég reikna ekki með að þið þekkið flugmanninn, en þið fáið auka punkt ef þið getið nefnt tilefni myndarinnar.
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11681
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Gáta

Póstur eftir Sverrir »

Einar Páll sendi mér þessar línur

[quote=Einar Páll]Percival MeW Gull , racer sem a hraðametið fra Englandi til Cape Town og flugmaðurinn var test flugmaður Percival
Og hét Alex Henshaw og flugið tók rúmar 10 klukkustundir.[/quote]
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sigurjón
Póstar: 86
Skráður: 22. Feb. 2007 00:10:23

Re: Gáta

Póstur eftir Sigurjón »

Nei, það er ekki rétt! Vélin er að vísu bresk, en er mikið langt frá því að vera Mew Gull. Maðurinn á myndinni er ekki Alex Henshaw
Passamynd
Messarinn
Póstar: 936
Skráður: 1. Apr. 2005 12:44:30

Re: Gáta

Póstur eftir Messarinn »

Er þetta ekki Miles M3B Falcon Six ?
Guðmundur Haraldsson Flugmódelfélag Akureyrar

A RAF engineering officers joke: Whats the difference between a fighter pilot and his aircraft? The plane stops whining when you shut down the engines.
Passamynd
Sigurjón
Póstar: 86
Skráður: 22. Feb. 2007 00:10:23

Re: Gáta

Póstur eftir Sigurjón »

Nógu rétt. Þetta er reyndar frumgerðin af Miles M3 Falcon og bar stafina G-ACTM. Myndin er tekin á köldum október morgni árið 1934 þegar eigandi vélarinnar er að leggja af stað í England til Ástralíu MacRobertson flugkeppninni. Maðurinn fram við vélina er einmitt eigandinn, Mr. H.L. Brooks. Hann komst alla leið til Ástralíu, án þess þó að vera meðal efstu manna. Í mars 1935 flaug hann til baka til Englands á 7 dögum og 19 klst. sem var nýtt met. Vélin eyðilagðist 18 mánuðum seinna.
Passamynd
Sigurjón
Póstar: 86
Skráður: 22. Feb. 2007 00:10:23

Re: Gáta

Póstur eftir Sigurjón »

Þessi hérna er nokkuð merkileg fyrir þær sakir að hún er ennþá til! Hvaða flugvélartegund er þetta og hvar er hún staðsett?

Mynd
Passamynd
tf-kölski
Póstar: 125
Skráður: 19. Apr. 2007 16:34:21

Re: Gáta

Póstur eftir tf-kölski »

Pfalz D.IIIa ? :-)

Mynd
Driving is for people who can't fly!
Passamynd
Sigurjón
Póstar: 86
Skráður: 22. Feb. 2007 00:10:23

Re: Gáta

Póstur eftir Sigurjón »

Nei, þetta er ekki Pfalz. En eins og sést á merkjunum á vélinni er hún frá sama heraðila í fyrri heimsstyrjöldinni. Eftir því sem ég best veit, þá er þetta eina vél sinnar tegundar sem eftir er í heiminum, þó gæti verið að Smithsonian ætti eina af annarri gerð.
Svara