Síða 8 af 53

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 2. Sep. 2006 01:12:19
eftir Sverrir
Takk fyrir það Sigurður, þú kemur bara í heimsókn við tækifæri.

Já dagurinn var tekinn snemma, fyrstu menn mættir út á völl kl.9 í morgun og þeir síðustu fóru heim rétt rúmlega 23 í kvöld. 1000 fermetrar af torfi voru jarðaðir í dag ásamt öðrum verkum og voru allir fegnir þegar síðasta þakan fór niður, stór áfangi að baki þar.

Hér sést bílinn sem kemur með grasið góða sem hefur haldið okkur uppteknum síðustu daga og kvöld, jafnvel vikur ef menn vilja fara svo langt aftur í tíma
Mynd

Séð inn á braut
Mynd

Annað sjónarhorn
Mynd

Klassískt sjónarhorn, það eru kominn skóför í steininn, alveg satt.
Mynd

Menn á fullu rétt fyrir 23, takið eftir nútímalegum upplýsingaraðferðum!
Mynd

Nú er bara að fjölmenna á morgun og eiga góðan dag saman, veðrið var frábært í dag og lofar góðu á morgun!

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 2. Sep. 2006 01:14:01
eftir Jón Björgvin
glæsilegt reyni að komast ef ég fæ far einhverstaðar :D

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 2. Sep. 2006 23:04:29
eftir Agust
Takk fyrir frábæran dag. Nokkrar myndir frá opnunarhátíðinni eru aftast í þessu safni: http://picasaweb.google.com/agbjarn/Modelflug2006

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 3. Sep. 2006 00:58:04
eftir Sverrir
Já kærar þakkir fyrir komuna, myndir koma inn á morgun.

Hérna er svo ein mynd af svæðinu eins og það leit út í morgun.

Mynd

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 3. Sep. 2006 12:13:36
eftir Spitfire
Til hamingju með völlinn suðurnesjamenn, kæmi mér ekki á óvart að einhver villtur fullskala flugmaður myndi gera tilraun til að lenda þarna :P

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 3. Sep. 2006 21:22:13
eftir Agust
[quote=Spitfire]..., kæmi mér ekki á óvart að einhver villtur fullskala flugmaður myndi gera tilraun til að lenda þarna :P[/quote]
Fullskalavélar lentu þarna unnvörpum í gær, eins og fram kemur á myndunum. Módelmenn Suðurnesja verða að passa sig ef 1:1 flugmenn fara að verða of ágengir. Þetta gæti verið ómótstæðileg freisting fyrir ístöðulausa flugmenn.

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 4. Sep. 2006 00:11:43
eftir Sverrir
Já við eigum í viðræðum við IDF um að versla af þeim nokkur loftvarnarskeyti, þeir eru með nokkuð góð verð þessa dagana :rolleyes:

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 4. Sep. 2006 11:20:42
eftir kip
Lundastofninn ku vera hruninn þannig að þið getið fengið háfa fyrir lítið.

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 4. Sep. 2006 12:09:58
eftir Sverrir

Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja

Póstað: 4. Sep. 2006 19:35:13
eftir Þórir T
Er það rétt að þetta verði nýjasti flugvöllurinn hjá Iceland Express? minni flugvallargjöld....

og já btw Til hamingju drengir, leitt að hafa misst af klippingunni hjá Árnanum...