Edge 540T frá Will Hobby

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Björn G Leifsson »

[quote=Offi]Að hún deyji ung og verði fallegt lík, semsagt? :o[/quote]
Ekki láta svona... þetta er flug-leg vél... Það er bara að sjá til þess að hún sé vandlega frá gengin tæknilega og færð einhvern til að afmeyja hana fyrir þig og trimma Svo færðu þan sama góða mann til að "taka hana með þér í snúru" svo þú náir að kynnast henni í rólegheium og ná tökum henni.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Offi
Póstar: 348
Skráður: 28. Nóv. 2006 22:23:21

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Offi »

Afmeyja? Taka hana með mér? Ja hérna. En já, planið var einhvern veginn svona eins og þú lýstir þarna... gróflega.
Ég fæ kannski að leita til þín? ;)
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Passamynd
Gaui K
Póstar: 449
Skráður: 2. Maí. 2004 23:07:17

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Gaui K »

Ég býð mig fram hef aldrei flogið listflugvél dauðlangar að prófa! :lol:
kv Gaui K.
Passamynd
Offi
Póstar: 348
Skráður: 28. Nóv. 2006 22:23:21

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Offi »

Aldrei flogið... ehh... afmeyja... fljúga...snýst þetta um ÞAÐ? Hjúkk, maður, ég var kominn með verulegar efasemdir um Dr. Björn! :D
Hann fer eflaust vel með Korterið, ég er ekki í nokkrum vafa um það! :) Hann á "forkaupsrétt" á jómfrúarfluginu, ef hann vill! Ekki verður það ég, svo mikið er víst, enda á ég bara lóðréttar lendingar að baki. :rolleyes:
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Passamynd
Offi
Póstar: 348
Skráður: 28. Nóv. 2006 22:23:21

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Offi »

Jæja, ég er búinn að tengja annað hallastýrið, sbr. meðfylgjandi mynd.... og hér með fór spennan úr þætti morgundagsins! :rolleyes:

Mynd
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Passamynd
kip
Póstar: 564
Skráður: 24. Apr. 2006 13:44:49

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir kip »

Það væri ekki verra að nota clevisa úr málmi, plastclevis á hæðarstýrinu átrainernum mínum er svo mikið slitinn að litli pinninn sem gengur í gegnum control hornið er er við það að detta í stundur.
Kristinn Ingi Pétursson
Netfang: kip[hjá]kip.is | vefsíður: www.kip.is og www.stafn.is | Sími: 650 5252
Passamynd
Gaui
Póstar: 3812
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Gaui »

2000% sammála Kipparanum -- EKKI NOTA PLAST TENGI. Ef ég orða þetta á annan hátt, þá skaltu EKKI NOTA PLAST TENGI.

Og svona til að ítreka, þá mæli ég með að þú notir ekki plast tengi. Þau þola alls ekki álagið á þessu módeli með fyrirsjáanlegum afleiðingum. Notaðu málm tengi og settu ró með til að kontra það fast.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Árni H
Póstar: 1598
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Árni H »

[quote=Gaui]2000% sammála Kipparanum -- EKKI NOTA PLAST TENGI. Ef ég orða þetta á annan hátt, þá skaltu EKKI NOTA PLAST TENGI.

Og svona til að ítreka, þá mæli ég með að þú notir ekki plast tengi. Þau þola alls ekki álagið á þessu módeli með fyrirsjáanlegum afleiðingum. Notaðu málm tengi og settu ró með til að kontra það fast.[/quote]
Hvað segirðu Gaui, á ekki að nota plasttengi? :D
Passamynd
Offi
Póstar: 348
Skráður: 28. Nóv. 2006 22:23:21

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Offi »

Ég held að ég hafi lesið það á milli línanna að maður ætti að forðast plasttengi, er það það sem þið eruð að segja? :rolleyes:

Ég fór reyndar í ónefnda búð og prófaði málmtengi, en þau voru svo losaraleg á teininum að ég gat ekki treyst þeim, jafnvel þó ég notaði ró. Þá þarf ég að fá mér nýja teina. Þetta er eitthvað kínverskt mánudagssnitt á teinunum og ristir ekki djúpt.

Hins vegar er raunin á mínum vélum sú að álagið er mest á nefið! Vonandi sleppur þessi við slíkar raunir, ekki síst ef ég NOTA EKKI PLAST TENGI. :lol:
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Passamynd
Gaui
Póstar: 3812
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Gaui »

[quote=Offi]Ég held að ég hafi lesið það á milli línanna að maður ætti að forðast plasttengi, er það það sem þið eruð að segja? :rolleyes:[/quote]
Já, Offi minn, ég hef kannski ekki tekið nógu sterkt til orða, en samkvæmt öllum kokkabókum (Helga Sigurðar þar með talin), þá er EKKI GOTT AÐ NOTA PLAST TENGI.

Ég myndi líka fá mér nýja teina, þar sem kínversk snitti virðast stundum ekki vera gormlaga.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara