Síða 9 af 53
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 4. Sep. 2006 20:15:28
eftir Sverrir
Í öðrum áfanga þá stefnum við að því að koma upp aðstöðu fyrir innanlandsflugið og með þriðja áfanga þá verður lítið mál að taka við utanlandsumferðinni líka.
Já þú misstir af miklu
líka þegar Björninn klippti á borðann með Árnanum
og rjómakökunni
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 4. Sep. 2006 21:09:20
eftir Þórir T
ég veit ég þarf ekki að biðja þig um það einu sinni að halda eftir kökubita handa mér..... :-Þ tel það víst að bitinn sé á leiðinni í íslandspóstinum góða, amk þýðir ekki að senda hana með Landflutningum eins og áður hefur komið fram.... myndi þá líkjast margumtöluðu möffins á endastöð...
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 4. Sep. 2006 21:16:27
eftir Björn G Leifsson
[quote=Sverrir]Já þú misstir af miklu
líka þegar Björninn klippti á borðann með Árnanum
og rjómakökunni
[/quote]
Talandi um að missa af...
Hér sést hvar undirritaður var staddur um það bil akkúrat á klippingaraugnablikinu.
Ég sendi einmitt heillaóska-SMS-ið á Sverri þarna ofanaf pallinum klukkan fimm.
Það var svo sem alltílagi að missa af bæjarstjóranum, verra að missa af því að sjá strákinn fljuga, slæmt að vera ekki á staðnum að samgleðjast öllum þessum dugnaðarforkum EN....
AÐ ÞURFA AÐ LIFA VIÐ ÞAÐ AÐ HAFA MISST AF RJÓMATERTUNNNI---- ÞAÐ ER BLÁTT ÁFRAM ÓMANNÚÐLEGT!!!!!
:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 4. Sep. 2006 22:30:31
eftir kip
Ja það beið þín þó muffins...
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 4. Sep. 2006 22:58:00
eftir Sverrir
Því miður kláraðist kakan góða upp til agna, þetta var 100 mannað rjómaterta af bestu gerð og sáust síðustu menn sleikja rjómann af bakkanum.
Fyrir þessa 5 sem spurðu ekki þá var hún frá Valgeirsbakarí í Njarðvíkurhverfi Reykjanesbæjar
Hver veit nema við finnum annað tækifæri í framtíðinni til að bjóða upp á aðra svona kaloríubombu!
Björn þú getur séð strákinn fljúga hérna >
http://vf.is/vefTV/91/default.aspx
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 5. Sep. 2006 00:11:19
eftir Björn G Leifsson
Ég er núbúinn að áfara vefinn og niðurhala fælnum og afnjóta þess að áhorfa hann.
Takk fyrir ábendinguna Sverrir. Ánú ég þetta í safninu mínu.
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 5. Sep. 2006 12:24:06
eftir Sverrir
Bls.19 í Morgunblaði dagsins er einkar mikið tengd atburðum helgarinnar ásamt
frétt VF frá því um helgina.
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 5. Sep. 2006 21:52:28
eftir Sverrir
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 5. Sep. 2006 22:17:40
eftir Helgi Helgason
Já, ég segi nú ekki annað en það, ef þetta hús á eftir að vera vallahús okkar í framtíðinni þá erum við mjög vel settir. Ég þekki þetta hús mjög vel og get fullyrt að þarna yrði hin fínasta aðstaða. Sé fyrir mér fundar- skrifstofu- sem og salernisaðstöðu. Auk þess væri hægt að útbúa smiðaaðstöðu ef menn hefðu áhuga.
Re: Flugvallarmál Flugmódelfélags Suðurnesja
Póstað: 8. Sep. 2006 12:38:30
eftir Sverrir
Já það eru spennandi tímar framundan.
Meiri fréttir
http://vf.is/tolublad/587/risasida/18/default.aspx
Nú er gamli völlurinn líka notaður í auglýsingaskyni
http://vf.is/tolublad/587/risasida/11/default.aspx
Einnig endursögn á vef Félags íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa á Íslandi.
http://fiaet.is/default.asp?sid_id=2667 ... 73&meira=1
Alvaran.com fjallaði einnig um málið.
http://alvaran.com/e107/comment.php?comment.news.57