Síða 9 af 9
Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 8. Apr. 2025 18:52:13
eftir Gaui
Takk, Jón. Ég er búinn að vera með kvef (flensu) síðustu rúma viku, en nú er heilsan að lagast og ég fer á verkstæðið á hverjum degi.
Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 9. Apr. 2025 12:13:25
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 73
Það eina sem ég gerði í dag var að snikka til neðri hluta hægri stífuparsins og bora það fyrir átta 2 mm boltum sem verða festir í þegar glerfíberinn er kominn á. Ég límdi líka krossviðinn á hitt stífuparið.

- 20250409_115311.jpg (141.33 KiB) Skoðað 294 sinnum

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 10. Apr. 2025 12:11:04
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 74
Ég fór í Víkurkaup í morgun og keypti grænan lit sem passar undir flapsana (og hugsanlega á fleiri stöðum) og dundaði svo við að mála þá. Það eina sem maður þarf að passa sig á er að dýfa ekki penslinum í kaffið (

).

- 20250410_094408.jpg (136.12 KiB) Skoðað 193 sinnum
Þegar TF-LBP var keypt frá Englandi var kúptur gluggi fyrir myndavél á vinstri hliðinni. Hann var tekinn af áður en vélin var send til íslands, en bótin í gatinu sást vel.

- 20250410_112704.jpg (136.71 KiB) Skoðað 193 sinnum
Búinn að undirbúa glerfíberinn á stífurnar með því að klippa niður ræmur af fíber, sem ég ætla svo að líma niður með epoxý kvoðu á morgun.

- 20250410_114249.jpg (135.54 KiB) Skoðað 193 sinnum

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 11. Apr. 2025 12:44:16
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 74
Búinn að setja glerfíber öðrum megin á vængstífurnar. Hinum megin á morgun.

- 20250411_095742.jpg (141.8 KiB) Skoðað 175 sinnum
Á meðan epoxýið harðnaði dúllaði ég við að setja undirstöður undir aftursætin og búa til sætið fyrir aftan flugstjórann. Það er ekki bekkur, eins og venjulega, vegna þess að börurnar fyrir sjúklinginn þurfa að komast fyrir vinstra megin í flugklefanum.

- 20250411_120301.jpg (141.75 KiB) Skoðað 175 sinnum

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 14. Apr. 2025 12:36:24
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 75
Ég bjó til sessur í sætin.

- 20250412_121900.jpg (142.81 KiB) Skoðað 143 sinnum
Svo málaði ég sessurnar svartar. Ég þarf líklega að mála aðra umferð.

- 20250414_115644.jpg (142.85 KiB) Skoðað 143 sinnum
Ég penslaði lokaumferð af epoxy kvoðu á stífurnar.

- 20250414_094756.jpg (136.13 KiB) Skoðað 143 sinnum

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 15. Apr. 2025 12:15:34
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 76
Nokkur smáverk. Þessi smíði er það langt komin að það eru nánast bara eftir smáverk. Þau vilja samt verða tímafrek.
Balsa innfylling í hjólastellið. Þetta verður svo klætt með Oratexi.

- 20250415_114319.jpg (142.95 KiB) Skoðað 119 sinnum
Lok fyrir aftan aftursætið. Þetta er gert úr pappa og ég var að reya að láta þetta líta út eins og segldúkur

- 20250415_114330.jpg (141.03 KiB) Skoðað 119 sinnum
Sessurnar límdar á sætin.

- 20250415_114920.jpg (142.41 KiB) Skoðað 119 sinnum

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 16. Apr. 2025 12:30:31
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 77
Það er heilmikið verk að pússa niður grunninn á stífunum. Svo setti ég M2 skrúfur í festinguna neðan á stífunni.

- 20250416_121003.jpg (137.62 KiB) Skoðað 100 sinnum
Ég setti Oratex á hjólastellið, grunnaði það, pússaði með P400 pappír og sprautaði með silfurmálningu.

- 20250416_121134.jpg (136.3 KiB) Skoðað 100 sinnum

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 17. Apr. 2025 12:29:28
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 78
Ég pússaði grunninn af seinna stífuparinu og setti svo fylliefni í holur og göt. Svo pússaði ég niður grunninn sem lak til og bjó til dropa. Það var miklu meiri vinna en ég hélt það yrði.

- 20250417_110421.jpg (143.3 KiB) Skoðað 62 sinnum
Svo klippti ég lengjur af rennilás, sem ætlaður er á dúkkuföt og límdi sitt hvoru megin við stélið, V vinstra megin og ...

- 20250417_112112.jpg (137.58 KiB) Skoðað 62 sinnum
... L á hvolfi á hægri hlðina.

- 20250417_113423.jpg (141.4 KiB) Skoðað 62 sinnum

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 18. Apr. 2025 12:58:22
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 79
Stífurnar eru tilbúnar: pússaðar, grunnaðar og sprautaðar með silfurmálningu. Ég maskaði innan í flapsahólfið og sprautaði svo silfurmálningu á vængina.

- 20250418_104827.jpg (140.15 KiB) Skoðað 25 sinnum
Silfurmálningin komin a skrokkinn.

- 20250418_113122.jpg (144.17 KiB) Skoðað 25 sinnum
Ég skar til álplötu undir skrokkinn að framan og bjó svo til hnoð á hana. Aðferðin er að gera hnoðið með stálvír og jafna það svo með kopar röri. Þessa aðferð fékk ég hjá Danny Fenton í Englandi, miklum meistara, sem sýnir þetta á
YouTube.

- 20250418_120250.jpg (142.75 KiB) Skoðað 25 sinnum
