Síða 9 af 31
Re: Fokker D.VIII
Póstað: 4. Okt. 2009 19:45:33
eftir Guðjón
Til Hamingju

Re: Fokker D.VIII
Póstað: 4. Okt. 2009 19:49:50
eftir jons
Takk takk
Annars rústaði ég Stikknum í frumfluginu. Viðgerðir eru hafnar. Nánar síðar.
Re: Fokker D.VIII
Póstað: 4. Okt. 2009 19:58:27
eftir Sverrir
Til hamingju og leitt að heyra.
Skiptast á skin og skúrir.
Re: Fokker D.VIII
Póstað: 5. Okt. 2009 12:19:06
eftir Jónas J
Æ æ leiðinlegt að heyra með stikkinn

Þá er bara að fara að líma

Re: Fokker D.VIII
Póstað: 5. Okt. 2009 18:34:11
eftir Guðjón
[quote=Guðjón]Til Hamingju algert rútt:)[/quote]
mömmu finnst hann algert krútt líka
Re: Fokker D.VIII
Póstað: 5. Okt. 2009 19:31:11
eftir jons
[quote]mömmu finnst hann algert krútt líka[/quote]
Ef þú ert að meina Fokker flugmanninn - þá takk
Ef þú meinar nýjasta afkvæmið þá líka takk - en það er stúlka, ekki drengur.
Re: Fokker D.VIII
Póstað: 5. Okt. 2009 23:26:27
eftir Guðjón
Ég var auðvitað að tala um hana.
Re: Fokker D.VIII
Póstað: 6. Okt. 2009 00:07:59
eftir Ljoni
til hamingju og leiðinlegt með frumflugið. hvað er afkvæmið orðið gamalt
Re: Fokker D.VIII
Póstað: 6. Okt. 2009 01:20:22
eftir jons
Hún er orðin vikugömul núna í dag, þriðjudag.
Varðandi frumflugið: Þetta er skítt - en þannig er þetta bara, skítur skeður. Ég tjasla bara kvikindinu saman og reyni aftur. Verst er eiginlega að ég hef ekki hugmynd um hvað klikkaði þannig að ég verð eiginlega að gera ráð fyrir hinu versta

Ekki einu sinni reynsluhundarnir sem voru í kringum mig vita hvað gerðist.
Re: Fokker D.VIII
Póstað: 6. Okt. 2009 08:47:46
eftir Gaui
Reynsluhundunum í kringum hann fannst undarlegt að það var slökkt á rofanum þegar að brakinu var komið.
Getur hugsast að þegar Mummi gaf inn til að fara á loft, þá hafi rofinn hrokkið í AF stöðu?
Þetta atvik náðist því miður ekki á vídeo, en módelið tók þannig boga upp og síðan niður, að það var ljóst að það var enginn að stýra því. Ef Mummi hefði haft stjórn, þá hafði hann nægan tíma til að leiðrétta og stýra, en ekkert gerðist, svo við erum núna að kenna rofanum um þangað til annað líklegra finnst.