Síða 9 af 10
Re: Hraðflugskeppni(r) 2012
Póstað: 8. Maí. 2012 13:36:17
eftir Ingþór
[quote=Jónas J]
Svona af myndinni að dæma held ég að Stinger sé alveg málið
sýnist Magnum ekki vera fara langt
[/quote]
nei þessi mynd er úr framtíðinni (Tekin með
Ricoh myndavél, svakaleg tækni). En svona mun Magnum verða ef ég fæ ekki í hann ný servo
Re: Hraðflugskeppni(r) 2012
Póstað: 8. Maí. 2012 13:52:57
eftir einarak
[quote=Ingþór]ég iða í skinninu mig langar svo til að vera með... valið stendur þó milli þess að fá sér Stinger eða alminnileg servo í Magnum...
https://frettavefur.net/Forum/uploadpic ... 9120_0.jpg[/quote]
Af myndinni af þessum Magnum að dæma þá hefuru ekki verið að fara nærrum því nógu hratt. Þannig að er stinger ekki bara málið fyrir þig
Re: Hraðflugskeppni(r) 2012
Póstað: 9. Maí. 2012 15:42:49
eftir Sverrir
Rakst á eina mynd af Ingþóri í Magnum gallanum! Sex dagar til stefnu!
Re: Hraðflugskeppni(r) 2012
Póstað: 9. Maí. 2012 15:48:21
eftir Björn G Leifsson
Bara svona af forvitni, hvada ahyggjur hefurdu af servounum Ingthor? Hrada (servosins), eda?
Re: Hraðflugskeppni(r) 2012
Póstað: 9. Maí. 2012 22:52:47
eftir Ingþór
Nei, togið í þeim. Framleiðandi mælir með 8kg/cm servóum.
Þær eru allnokkrar MagnumR sem hafa krassað hérlendis og mig grunar að það sé aðallega vegna þess að servóin hafa verið slök.
Mér skildist á smíðameistara fyrstu MagnumR vélar minnar (sem fór til Hjartar) að "hún væri með Alvöru servóum, annað en allar þær sem voru búnar að krassa". Hún var þá með JR DS811 sem er ekki nema tæp 4 kg tog.
Framleiðandinn mælir með HS-645MG sem er 7.7 kg tog en digital bróðir þess, HS-5645MG er 10,3 kg og mér finnst tilhugsunin um digital, uppá holding power ekkert slæm.
Re: Hraðflugskeppni(r) 2012
Póstað: 14. Maí. 2012 13:07:17
eftir Sverrir
Fyrsti keppnisdagur á morgun, vonandi eru allir með klárar vélar!
Re: Hraðflugskeppni(r) 2012
Póstað: 14. Maí. 2012 13:56:19
eftir Björn G Leifsson
[quote=Ingþór]Nei, togið í þeim. Framleiðandi mælir með 8kg/cm servóum.
Þær eru allnokkrar MagnumR sem hafa krassað hérlendis og mig grunar að það sé aðallega vegna þess að servóin hafa verið slök.
Mér skildist á smíðameistara fyrstu MagnumR vélar minnar (sem fór til Hjartar) að "hún væri með Alvöru servóum, annað en allar þær sem voru búnar að krassa". Hún var þá með JR DS811 sem er ekki nema tæp 4 kg tog.
Framleiðandinn mælir með HS-645MG sem er 7.7 kg tog en digital bróðir þess, HS-5645MG er 10,3 kg og mér finnst tilhugsunin um digital, uppá holding power ekkert slæm.[/quote]
DS811 voru reyndar þekkt að endemum fyrir tilhneigingu til að flöttra á 3D vélum. Ætli það sama sé ekki tilfelið þegar hraðinn er orðinn svona. Mikilvægast kannski að linkarnir séu traustir og án gjökts. Ég mundi varla tíma 5645 í þetta, kosta ef ég man rétt $110 -$120. Hef notað HS-645 talsvert. Veit ekki hvort einhver svoleiðis liggja þarna heima. Ef þig vantar þá kem ég heim annaðhvort miðvikudags, eða fimmtudagskvöld og get gáð hvað er til.
Leiðrétting: Nei ég er að rugla. 5645MG kosta um $50 Var að hugsa um 7955TG. Manni förlast :/
Re: Hraðflugskeppni(r) 2012
Póstað: 14. Maí. 2012 15:08:57
eftir Haraldur
Hvað er hámarks vindhraði ?
Re: Hraðflugskeppni(r) 2012
Póstað: 14. Maí. 2012 15:15:25
eftir Sverrir
408 km/h (220 kn; 253 mph; 113 m/s) mælt undan strönd Ástralíu þann
10.apríl 1996.
Hvað hraðflugskeppnina varðar þá eru engin takmörk á því en 8+ m/s er farið að verða frekar leiðingjarnt.
Re: Hraðflugskeppni(r) 2012
Póstað: 15. Maí. 2012 15:55:12
eftir Sverrir
Minni keppendur á að vera mættir eigi síðar en 19:15 en keppnin hefst stundvíslega kl.19:30!