Síða 9 af 16

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 22. Nóv. 2012 22:15:27
eftir Gunni Binni
Til hvers er svona stálsandur og hvaðan fá menn hann?
kv.
GBG

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 22. Nóv. 2012 22:22:43
eftir Sverrir
Notaður í sandblástur, ef þig vantar eitthvad smotterí þá reddum við því á sunnudaginn annars eru það þessi fyrirtæki sem eru í þessum bransa. Stálsandur á Google ætti að skila þeim nokkrum.

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 23. Nóv. 2012 14:53:59
eftir Gaui
Fann einn spjallþráð sem þú ert ekki inná ! Af hverju ekki?

SELLERI

:cool:

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 23. Nóv. 2012 15:54:45
eftir Sverrir
Ég er reyndar skráður þarna til leiks! :cool:

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 23. Nóv. 2012 17:18:15
eftir Sverrir
Þarf örlítið meira efni fyrir skíðið, svo krossvið var bætt við beggja megin.
Mynd

Ashlok/Molex tengi halda vængservóunum tengdum.
Mynd

Herpihólkar sjá um að halda tengingunum saman.
Mynd

Tækjaplata komin efst í skrokkinn.
Mynd

Mælaborðið verður fest með seglum.
Mynd

Svo er bara að sníða til plast.
Mynd

Þrjár hliðar tilbúnar í fjörið.
Mynd

Grunnurinn pússaður af þar sem plastið verður límt.
Mynd

Svo er bara að líma og halda á meðan límið þornar.
Mynd

Eftir að límið er þurrt þá er farið í aðeins meiri nákvæmni.
Mynd

Voila!
Mynd

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 23. Nóv. 2012 18:32:02
eftir Árni H
Glæsilegt! Seturðu Orange í hana?

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 23. Nóv. 2012 19:05:10
eftir Sverrir
Ekkert frekar, þetta er bara uppsetningardót sem liggur þarna á myndinni.

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 24. Nóv. 2012 01:32:22
eftir Sverrir
Stýring fyrir mælaborðið.
Mynd

Festingar fyrir mælaborðið í límingu.
Mynd

Allt plast komið í húfuna en ég á eftir að fínlíma hliðarnar.
Mynd

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 26. Nóv. 2012 00:51:18
eftir Sverrir
Listi fyrir klæðninguna til að leggjast upp að.
Mynd

Lítur bara þokkalega út.
Mynd

Allt að gerast undir hettunni.
Mynd

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 27. Nóv. 2012 01:24:12
eftir Sverrir
Skíðið fór í beygingu í kvöld.
Mynd