Ég velti mikið og lengi fyrir mér hvar ég gæti staðsett rofana tvo sem þurfa að vera á þessu módeli. Að endingu setti ég smá brú inn í skrokkinn innan við úrskurðinn á milli neðri vængjanna. Þannig verður hægt að kommast að rofunum á milli hjólanna, en þeir munu aldrei sjást.
20230923_103007.jpg (149.77 KiB) Skoðað 2048 sinnum
Ég setti stöng úr servóinu í hallastýrið. Því miður er festingin rauð, en þar sem þessi aðferð er mjög styrk og góð, þá ætla ég að sætta mig við það. Hugsanlega mála ég þetta svart.
20230923_121015.jpg (142.09 KiB) Skoðað 2048 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég setti alla vængi á í fyrsta sinn. Það var auðveldara en ég bjóst við. Módelið er líka ekkert ofsalega stórt. Mér datt í hug að setja hreyfilinn þar sem hann á að vera og svo athugaði ég hvar vélin ballanseraði. Það er nánast á réttum stað.
20230925_095556.jpg (146.9 KiB) Skoðað 2025 sinnum
Byrjaði að setja vængvírana á. Það er heilmikið verk og ég er rétt hálfnaður.
20230925_120034.jpg (152.14 KiB) Skoðað 2025 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Þá eru vængirnir víraðir, nema nokkrir spottar í skrokkstífurnar. Ég er að velta fyrir mér að setja herpihólka upp á þessi samskeyti til að gera þau minna áberandi.
20230926_101932.jpg (143.74 KiB) Skoðað 2011 sinnum
Og fyrst vængirnir eru núna fastir, þá er hægt að tengja hallastýrin saman með stöngunum sem fylgja.
20230926_110502.jpg (147.03 KiB) Skoðað 2011 sinnum
Í kittinu fylgja festingar fyrir vírana í stélið, en þeir ganga ekki upp, svo ég er í miðju verki að búa til nýjar úr kopar. Ég þarf að búa til 16 stykki.
20230926_120637.jpg (145.89 KiB) Skoðað 2011 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Frekar lítið gert í dag. Vírarnir úr skrokkstífunum niður í skrokkinn tóku all langan tíma, en líta vel út.
20230928_111344.jpg (150.21 KiB) Skoðað 1977 sinnum
Neðan í vængstífunum eru krókar sem ég var ekki búinn að festa almennilega, en þar sem öll stög eru komin, þá er tækifæri til að ganga frá þeim. Ég límdi krókana upp í stífurnar með epoxý lími. Límbandið er þarna til að varna því að límið leki niður á vænginn.
20230928_111358.jpg (139.97 KiB) Skoðað 1977 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Festingar vængvíranna voru smá óáasjálegar, svo mér datt í hug að renna herpihólkum upp á þær og blása þá svo með hitablásara. Þetta er mun skárra.
20231002_092418.jpg (132.77 KiB) Skoðað 1925 sinnum
Ég treysti ekki alveg vængfestingum á neðri vængmiðju, svo ég útbjó koparplötur sem fara undir festiskrúfurnar, yfir hjólastellið í vængmiðjunni og skrúfast svo niður hinum megin við það. Mun traustara, sérstaklega að aftan, þar sem það eina sem hélt stellinu var 0,6 mm krossviður.
20231003_091854.jpg (138.92 KiB) Skoðað 1925 sinnum
Föndraði saman glugga fyrir flugmanninn.
20231003_105450.jpg (125.21 KiB) Skoðað 1925 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég keypti nokkur flísteppi fyrir slikk í Rúmf...JYSK. Silla tók að sér að sauma poka fyrir vængina.
20231009_144452.jpg (161.4 KiB) Skoðað 1860 sinnum
Ég lauk við að binda upp stélið. Ég fékk loksins fittings frá Modelfixings í Englandi og kláraði með því stögin sem halda stélinu. Það verður ekki langt þangað til þetta módel verður flughæft.
20231010_101505.jpg (131.8 KiB) Skoðað 1860 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.