Síða 10 af 12
Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 23. Sep. 2023 13:27:38
eftir Gaui
Dagur 89
Ég velti mikið og lengi fyrir mér hvar ég gæti staðsett rofana tvo sem þurfa að vera á þessu módeli. Að endingu setti ég smá brú inn í skrokkinn innan við úrskurðinn á milli neðri vængjanna. Þannig verður hægt að kommast að rofunum á milli hjólanna, en þeir munu aldrei sjást.

- 20230923_103007.jpg (149.77 KiB) Skoðað 2052 sinnum
Ég setti stöng úr servóinu í hallastýrið. Því miður er festingin rauð, en þar sem þessi aðferð er mjög styrk og góð, þá ætla ég að sætta mig við það. Hugsanlega mála ég þetta svart.

- 20230923_121015.jpg (142.09 KiB) Skoðað 2052 sinnum

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 25. Sep. 2023 12:56:25
eftir Gaui
Dagur 90
Ég setti alla vængi á í fyrsta sinn. Það var auðveldara en ég bjóst við. Módelið er líka ekkert ofsalega stórt. Mér datt í hug að setja hreyfilinn þar sem hann á að vera og svo athugaði ég hvar vélin ballanseraði. Það er nánast á réttum stað.

- 20230925_095556.jpg (146.9 KiB) Skoðað 2029 sinnum
Byrjaði að setja vængvírana á. Það er heilmikið verk og ég er rétt hálfnaður.

- 20230925_120034.jpg (152.14 KiB) Skoðað 2029 sinnum

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 26. Sep. 2023 14:07:28
eftir Gaui
Dagur 91
Þá eru vængirnir víraðir, nema nokkrir spottar í skrokkstífurnar. Ég er að velta fyrir mér að setja herpihólka upp á þessi samskeyti til að gera þau minna áberandi.

- 20230926_101932.jpg (143.74 KiB) Skoðað 2015 sinnum
Og fyrst vængirnir eru núna fastir, þá er hægt að tengja hallastýrin saman með stöngunum sem fylgja.

- 20230926_110502.jpg (147.03 KiB) Skoðað 2015 sinnum
Í kittinu fylgja festingar fyrir vírana í stélið, en þeir ganga ekki upp, svo ég er í miðju verki að búa til nýjar úr kopar. Ég þarf að búa til 16 stykki.

- 20230926_120637.jpg (145.89 KiB) Skoðað 2015 sinnum

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 26. Sep. 2023 15:32:45
eftir Sverrir
Flott!
Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 27. Sep. 2023 12:49:19
eftir Gaui
Dagur 92
Sat við og bjó til festingar fyrir vírana sem halda stélinu saman. Þetta verður verulega flott þegar allt er komið.

- 20230927_104326.jpg (114.95 KiB) Skoðað 2001 sinni
Mér datt í hug að setja herpihólka upp á vírana til að gera þetta aðeins sléttara. Virðist virka vel.

- 20230927_105832.jpg (127.24 KiB) Skoðað 2001 sinni

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 28. Sep. 2023 12:51:25
eftir Gaui
Dagur 93
Frekar lítið gert í dag. Vírarnir úr skrokkstífunum niður í skrokkinn tóku all langan tíma, en líta vel út.

- 20230928_111344.jpg (150.21 KiB) Skoðað 1981 sinni
Neðan í vængstífunum eru krókar sem ég var ekki búinn að festa almennilega, en þar sem öll stög eru komin, þá er tækifæri til að ganga frá þeim. Ég límdi krókana upp í stífurnar með epoxý lími. Límbandið er þarna til að varna því að límið leki niður á vænginn.

- 20230928_111358.jpg (139.97 KiB) Skoðað 1981 sinni

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 29. Sep. 2023 13:23:24
eftir Gaui
Dagur 94
Ég setti tankinn í endanlega í og festi slöngur á eldvegginn til að fylla og yfirfall. Þær ná niður fyrir botn vélarinnar.

- 20230929_102313.jpg (150.52 KiB) Skoðað 1966 sinnum
Kveikjuboxið og tvær rafhlöður.

- 20230929_122730.jpg (159.95 KiB) Skoðað 1966 sinnum

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 3. Okt. 2023 13:22:14
eftir Gaui
Dagur 95
Festingar vængvíranna voru smá óáasjálegar, svo mér datt í hug að renna herpihólkum upp á þær og blása þá svo með hitablásara. Þetta er mun skárra.

- 20231002_092418.jpg (132.77 KiB) Skoðað 1929 sinnum
Ég treysti ekki alveg vængfestingum á neðri vængmiðju, svo ég útbjó koparplötur sem fara undir festiskrúfurnar, yfir hjólastellið í vængmiðjunni og skrúfast svo niður hinum megin við það. Mun traustara, sérstaklega að aftan, þar sem það eina sem hélt stellinu var 0,6 mm krossviður.

- 20231003_091854.jpg (138.92 KiB) Skoðað 1929 sinnum
Föndraði saman glugga fyrir flugmanninn.

- 20231003_105450.jpg (125.21 KiB) Skoðað 1929 sinnum

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 5. Okt. 2023 12:32:46
eftir Gaui
Dagur 96
Ég setti Vickers byssuna á sinn stað, setti nokkra balsakubba í kringum hana og límdi allt niður með silikon lími.

- 20231005_090000.jpg (152.83 KiB) Skoðað 1906 sinnum
Og hér er svo virki hlutinn á byssunni.

- 20231005_091314.jpg (141.73 KiB) Skoðað 1906 sinnum
Flugmaðurinn var aðeins of stuttur í annan endann, svo ég límdi balsakubb undir hann til að hann nái nógu hátt upp.

- 20231005_095227.jpg (137.71 KiB) Skoðað 1906 sinnum
Og hér er mælaborðið komið í og flugmaðurinn mátaður á sinn stað (ég er ekki búinn að líma hann).

- 20231005_111652.jpg (150.97 KiB) Skoðað 1906 sinnum
Hann virðist geta nýtt sér vopnið.

- 20231005_111728.jpg (141.01 KiB) Skoðað 1906 sinnum

Re: D.B. Sport & Scale S.E. 5a
Póstað: 10. Okt. 2023 11:46:47
eftir Gaui
Dagur 97
Ég keypti nokkur flísteppi fyrir slikk í Rúmf...JYSK. Silla tók að sér að sauma poka fyrir vængina.

- 20231009_144452.jpg (161.4 KiB) Skoðað 1864 sinnum
Ég lauk við að binda upp stélið. Ég fékk loksins fittings frá Modelfixings í Englandi og kláraði með því stögin sem halda stélinu. Það verður ekki langt þangað til þetta módel verður flughæft.

- 20231010_101505.jpg (131.8 KiB) Skoðað 1864 sinnum
