Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3676
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 83

Ég bjó til hnoð í morgun. Ég nota litla plastflösku með afskorinni holnál til að setja niður pínulitla dropa þar sem hnoðin eiga að vera. Ég byrjaði á bakinu á skrokknum og hnoðaði svo í kringum gluggana. Flest hnoð á skrokknum eru flútthnoð og ég geri ekki ráð fyrir að reyna við þau.
20240529_094022.jpg
20240529_094022.jpg (134 KiB) Skoðað 500 sinnum
Bárurnar á öllum stýrum eru festar niður með hnoðum. Það sést ekki sérlega vel, en það eru tvö hnoð á milli allra báranna, framan og aftan.
20240529_113133.jpg
20240529_113133.jpg (131.25 KiB) Skoðað 500 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3676
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 84

Stefán félagi okkar hér á verkstæðinu smellti af mér mynd í gær þar sem ég var að setja hnoð á flapann á öðrum vængnum. Mér þótti eðlilegt að skella henni hér inn, enda er ég þekktur fyrir mikið sjálfsálit.
20240529_113141.jpg
20240529_113141.jpg (140.81 KiB) Skoðað 479 sinnum
Það var komið að því að byrja að mála og vængirnir og stýrin voru tilbúin. Ég fékk málningu hjá versluninni Víkurkaup hér á Dalvík. Málningin er "hvít", kölluð Kidda hvítt. Hvít, en ekki alveg skær hvítt. Ég nota eldgamla Badger sprautu. Ég á stærri, en finnst þessi alveg nóg þegar ég vil hafa stjórn á málningunni. Það er líka minna ryk af þessu en stóru sprautunum.
20240530_101934.jpg
20240530_101934.jpg (131.39 KiB) Skoðað 479 sinnum
Og hér eru stýrin orðin hvít og vængirnir aðeins farnir að hvítna.
20240530_104436.jpg
20240530_104436.jpg (139.59 KiB) Skoðað 479 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3676
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- dagur 85

Smá dúll í dag: Ég sprautaði þriðju umferð með hvítu á vængina og stýrin. Nú þarf ég að líma hallastýrin á og svo "veðra" vængina, þ.e. gera þá drulluga áður en ég sprauta glæru.
20240604_094648.jpg
20240604_094648.jpg (143.07 KiB) Skoðað 406 sinnum
Það er alltaf spennandi að horfa á málningu þorna, en á meðan er tími til að taka til á borðinu og athuga með glugga. Ég fékk magn af glæru plasti og byrjaði að klippa það til svo það passi í opin á skrokknum.
20240605_112203.jpg
20240605_112203.jpg (132.02 KiB) Skoðað 406 sinnum
Það eru fjórir gluggar sem eru einfaldir og auðvelt að klippa. Afturglugginn er flóknari, svo ekki sé talað um framrúðuna.
20240605_112306.jpg
20240605_112306.jpg (132.15 KiB) Skoðað 406 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3676
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU dagur 86

Ég horfði á myndband eftir Danny Fenton á YouTube (The Devil is in the Detail) þar sem hann sýndi hvernig hægt er að gera framrúðu og reyndi að fylgja honum eins og mér sýndist best. Ég notaði gamalt dagatal (ekki plastvasa) og klippti það til þar til það passaði á skrokkinn.
20240606_102329.jpg
20240606_102329.jpg (143.27 KiB) Skoðað 383 sinnum
Svo klippti ég plastið eftir pappamátinu (þurfti reyndar að gera það tvisvar) og mátaði það svo á skrokkinn. Þetta tók nánast allan morguninn, en ég er ánægður með árangurinn. Ég lími þetta á þegar ég er búinn að setja innvolsið í.
20240606_111812.jpg
20240606_111812.jpg (138.62 KiB) Skoðað 383 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3676
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU dagur 87

Ég fékk lánað leiser hallamálið hjá syni mínum og var svo í langan tíma að stilla aðhallann (íslenska fyrir e. dihedral) á vængjunum í um 38 mm undir hvorn vængenda. Leiser strikið sést ekki á þessari mynd, enda liggur það undir vænginn, en ég er ekki viss um að ég hefði getað gert þetta svona hratt og örugglega ef ég hefði ekki haft leiser hallamál.
20240607_104419.jpg
20240607_104419.jpg (137.38 KiB) Skoðað 356 sinnum
Svo skar ég til kubba sem ég ætla að líma á stífurnar, ofan og neðan. Ég þarf ekki að gera ráð fyrir að geta stillt þetta, enda koma feringar á stífurnar, bæði við skrokkinn og undir vænginn, sem ekki verður hægt að snúa á neinn hátt.
20240607_111555.jpg
20240607_111555.jpg (131.85 KiB) Skoðað 356 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3676
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU dagur 88

Ég tálgaði til endana á stífunum. Seinna set ég vængina á og bý til feringarnar við skrokkinn og vænginn. Það verður smá púsl. Ég þarf að finna rör sem ég get sett yfir skrúfuhausana svo ég hafi aðgang að þeim.
20240610_093035.jpg
20240610_093035.jpg (139.06 KiB) Skoðað 308 sinnum
Í millitíðinni fór ég að tálga til sætin í flugmannsklefanum. Ég skar til þétt frauðplast og tálgaði það til með nýju hnífsblaði.
20240611_093207.jpg
20240611_093207.jpg (132.15 KiB) Skoðað 308 sinnum
Þegar ég var langt kominn mátaði flugmaðurinn sætið. Hann virðist passa ágætlega.
20240611_110318.jpg
20240611_110318.jpg (133.93 KiB) Skoðað 308 sinnum
Nú þarf ég bara að klæða innan veggina á flumannsklefanum og svo setja lok yfir fjarstýritækin. Ég skoðaði myndir þar sem sést innan í TF-FRU, og sætin og innviðir aðrir en mælaborðið eru dökk blá, svipað og dökka strikið utan á vélinni. Nú þarf ég að ná mér í bláa málningu og skvetta á sætin.
20240611_113357.jpg
20240611_113357.jpg (137.01 KiB) Skoðað 308 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3676
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU dagur 89

Þessi mynd er tvískip og sýnir bæði innan og utan. Ég setti vír í gegnum hnúðana á rofunum og hann nær út fyrir skrokkinn. Núna eru græjurnar virkar ef togað er í vírinn, en slökkt með því að ýta á hann.
20240612_102138.jpg
20240612_102138.jpg (141.07 KiB) Skoðað 115 sinnum
Lamirnar komnar á hurðirnar. Þær eru auðvitað ekki virkar, en það væri asnalegt að hafa þær ekki þarna.
20240614_100304.jpg
20240614_100304.jpg (135.67 KiB) Skoðað 115 sinnum
Ég límdi bökin á stólana og málaði þá með smá trélími. Ég er buinn að fá málningu sem ég ætla að sulla á þá á morgun.
20240614_111523.jpg
20240614_111523.jpg (135.25 KiB) Skoðað 115 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3676
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU dagur 90

Ég bjó til klæðningar innan í hliðarnar á skrokknum úr bárupappa utan af pottasetti úr Kostkó. Svo málaði ég klæðninguna og sætin blá.
20240615_102730.jpg
20240615_102730.jpg (141.11 KiB) Skoðað 94 sinnum
Ég hætti við að hafa lok yfir fjarstýrigræjunum, en þá þurfti ég að mála servóbakkann bláan. Ég málaði gólfið svart. Ég veit ekki hvaða litur er á teppinu í Frúnni, en svart er frekar hlutlaust.
20240615_113037.jpg
20240615_113037.jpg (138.43 KiB) Skoðað 94 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3676
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk

Póstur eftir Gaui »

TF-FRU -- Dagur 91

Efsti hluti mælaborðsins: eldsneytisslanga og svört málning. Ég málaði líka mótorhúsið svart.
20240617_105740.jpg
20240617_105740.jpg (141.09 KiB) Skoðað 52 sinnum
Innri klæðningin límd í.
20240617_112147.jpg
20240617_112147.jpg (143.43 KiB) Skoðað 52 sinnum
Lokið ofan á eldsneytistankinn. Þetta er 0,3 mm prentplötu ál, sem ég límdi með snertilími á vænginn. Svo skrúfaði ég nokkrar áberandi skrúfur og setti að lokum nokkra límdropa til að líkja eftir festingum (af því ég átti akki nógu margar skrúfur). Nú vantar mig bara að búa til lokin fyrir áfyllinguna.
20240618_103854.jpg
20240618_103854.jpg (139.17 KiB) Skoðað 52 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara