33% Kaiser Ka-3

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11599
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Sverrir »

Skíðið klárt.
Mynd

Listar settir innan á toppklæðninguna til að styrkja hana.
Mynd

Seglar munu halda stélinu á sínum stað.
Mynd

Ýmis sérhæfð verkfæri þarf við smíðar. ;)
Mynd

Afturendinn allur að rúnast til.
Mynd

Servósnúrur aftur í stél komnar á sinn stað.
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir einarak »

ohh svo dúlegur, ertu kanski fljótasti model-smiðurinn líka?
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11599
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Sverrir »

Oh, ætli það... ;)



Það eru 5990 þræðir á milli þessara tveggja smíðaverkefna! :/
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11599
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Sverrir »

Mjakast áfram.
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Messarinn
Póstar: 936
Skráður: 1. Apr. 2005 12:44:30

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Messarinn »

Þú ert eins og ég ,með mörg járn í eldinum ;)
Guðmundur Haraldsson Flugmódelfélag Akureyrar

A RAF engineering officers joke: Whats the difference between a fighter pilot and his aircraft? The plane stops whining when you shut down the engines.
Passamynd
gudjonh
Póstar: 869
Skráður: 27. Feb. 2008 09:07:06

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir gudjonh »

Já, fyrsti pósturinn var um vetrarverkefni! Er í WINTERpeg í -15°C. Þetta er bar "æði". Hef bæði flogið K8 og K6, en K3 er trúlega líkari "Rönlerki", se er tveggja sæta. Hef á ókalistanum að smíða KA6CR og geri það vonandi. Til lukku Sverri, flott "project"!
Guðjón
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11599
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Sverrir »

Segðu Gummi minn!

Takk Guðjón, líst vel á sexu, svo koma líka tvær þriggja metra áttur frá mér og Steina með hækkandi sól og hver veit nema eitthvað annað slæðist með!

Ka 3 er í raun og veru sama vél og Ka 1, nema í stað hringlaga timburskrokks að stéli er kominn þríhyrningslaga stálgrindarskrokkur. Svo kom tveggja sæta Ka 2 og forveri K7 á svipuðum tíma. Það er rétt svo pláss fyrir einn í þristinum nema kannski ef að um ólétta flugstýru væri að ræða!

[quote=Sverrir]...komin tími til að hefja vetrarverkin. [/quote]
;)

Ka 1 að gera lágt!
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11599
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Sverrir »

Ég hef verið að velta því fyrir mér síðustu vikur hvort hönnuðurinn gerði mistök í kringum stélið en smá yfirlega yfir myndum leiddi í ljós að svo var ekki.
Mynd

Klæðningin mun þurfa einhverja festingu í kringum vængstífurnar.
Mynd

Listum bætt inn á kassann til að fá stærri límflöt.
Mynd

Svo var bara að líma toppstykkið.
Mynd

Og „skemma“ þegar límið var þornað!
Mynd

Ekki versnar útlitið.
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Ólafur
Póstar: 539
Skráður: 19. Jún. 2007 09:18:59

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Ólafur »

Ekki er verra að fylgjast með þessum þráði "live" af og til. Kom með gest um daginn sem heillaðist alveg af þessu módeli ásamt aðstöðuni sem við höfum hér.
Passamynd
Gauinn
Póstar: 603
Skráður: 29. Maí. 2012 23:24:07

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstur eftir Gauinn »

[quote=Ólafur]Ekki er verra að fylgjast með þessum þráði "live" af og til. Kom með gest um daginn sem heillaðist alveg af þessu módeli ásamt aðstöðuni sem við höfum hér.[/quote]
Ég er alveg "grænn af öfund" yfir henni líka.
Og allt félagsstarfið sem fylgir.
Langar að vita miklu meira!
Svara