Síða 1 af 1

Kríumótið verður haldið 1. júní

Póstað: 24. Maí. 2020 15:41:57
eftir Sverrir
Kríumótið verður haldið 31. 30. maí 1. júní nk. á Sandskeiði.
Ef of hvasst verður fyrir hástartið munum við athuga með hangmót í staðinn.

Mynd

Mynd

Mynd

Re: Kríumótið verður haldið 30. maí nk.

Póstað: 27. Maí. 2020 17:27:14
eftir Sverrir
Hér að ofan átti að standa laugardaginn 30. maí, ekki 31. maí sem er vara dagur ásamt 1. júní, afsakið þetta!

Re: Kríumótið verður haldið 30. maí nk.

Póstað: 29. Maí. 2020 21:20:26
eftir Sverrir
Spáin er búin að vera mjög breytileg og í augnablikinu lítur ekki vel út með helgina, sunnudagurinn gæti sloppið og er það planið akkúrat núna að horfa til hans þar sem mánudagurinn á að vera blautur. Ef ekkert gengur um þessa helgi stefnum við á næstu helgi.

Ef menn eru í stuði þá má hringja saman í hitting og sjá til hvort hægt sé að gera eitthvað þó ekkert verði af mótshaldi.

Re: Kríumótið verður haldið 31. maí nk.

Póstað: 30. Maí. 2020 00:14:31
eftir lulli
Follow......

Re: Kríumótið verður haldið 31. maí nk.

Póstað: 30. Maí. 2020 19:55:19
eftir Sverrir
Skjótt skiptast veður eins og einhver sagði! Sunnudagurinn virðist ætla að verða blautur, tökum stöðuna í fyrramálið annars stefnir þetta á mánudaginn miðað við nýjustu tölur.

Re: Kríumótið verður haldið 31. maí nk.

Póstað: 31. Maí. 2020 08:13:08
eftir Sverrir
Blautt upp frá, lágskýjað og rigning, frestað til morguns!

Re: Kríumótið verður haldið 1. júní

Póstað: 31. Maí. 2020 18:37:06
eftir Sverrir
Mæting kl. 10 á Sandskeiði í fyrramálið þann 1. júní.