Síða 1 af 2

Draumavélin hans Tomma

Póstað: 1. Júl. 2020 17:12:07
eftir Gaui
Ég er a byrja að smíða flugmódel fyrir hann Tómas Jónsson, módel af flugvél sem hann hefur dreymt um í mörg ár, eiginlega síðan hann var lítill gutti. Hér er mynd af hluta hennar. Hver getur upp á hvaða flugvél þetta er?
20200701_165413.jpg
20200701_165413.jpg (134.05 KiB) Skoðað 3924 sinnum
8-)

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstað: 2. Júl. 2020 14:53:00
eftir Gaui
Stélkamburinn er frekar einfaldur og lamirnar bara krossviðartungur sem taka við teini sem stungið er niður í kambinn. Hér er annað skinnið komið á kambinn og þá verða tungurnar að fara í.
20200702_123821.jpg
20200702_123821.jpg (135.79 KiB) Skoðað 3888 sinnum
Hér er svo kamburinn og hliðarstýrið komin saman og formuð að mestu. Hugsanlega þarf að pússa eitthvað smá, en það verður bara síðar.
20200702_143802.jpg
20200702_143802.jpg (149.66 KiB) Skoðað 3888 sinnum
Beygjuradíusinn alves snyrtilegur.
20200702_143839.jpg
20200702_143839.jpg (149.14 KiB) Skoðað 3888 sinnum
8-)

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstað: 4. Júl. 2020 09:53:48
eftir Gaui
Hér er kominn hálfur stélflötur:
20200703_161800.jpg
20200703_161800.jpg (130.15 KiB) Skoðað 3849 sinnum
8-)

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstað: 6. Júl. 2020 15:07:55
eftir Gaui
Nú er stélflöturinn orðinn tvöfaldur, svo það er tími til að setja hæðarstýrin saman.
20200705_114053.jpg
20200705_114053.jpg (127.84 KiB) Skoðað 3809 sinnum
Hérna er efnið sem þarf í hæðarstýrin (eða þannig)
20200705_135653.jpg
20200705_135653.jpg (152.5 KiB) Skoðað 3809 sinnum
Allur balsinn kominn á sinn stað.
20200705_145316.jpg
20200705_145316.jpg (146.79 KiB) Skoðað 3809 sinnum
Það er ótrúlegt hvað það myndast mikið ryk þegar 1,5mm balsi er pússaður niður.
20200706_143153.jpg
20200706_143153.jpg (147.51 KiB) Skoðað 3809 sinnum
Ég get ekki klárað stýrin fyrr en búið er að setja stélið á skrokkinn, svo þá er bara að snúa sér að næsta parti.

8-)

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstað: 6. Júl. 2020 16:50:51
eftir Sverrir
Stórglæsilegt, Tommi verður sérdeilis kátur! :cool:

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstað: 7. Júl. 2020 21:57:32
eftir Gaui
Það er þó nokkur fjöldi vængrifja í þessari vél. Ég er búinn að vera í allan dag að skera þau út.
20200707_214740.jpg
20200707_214740.jpg (155.91 KiB) Skoðað 3772 sinnum
Dökku stykkin hæra og vinstra megin við vængrifin eru mótorfestingarnar. Þær þurfa að koma á miðjuvænginn á meðan honum er raðað saman.

8-)

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstað: 18. Júl. 2020 17:05:06
eftir Gaui
Eftir erfitt kvef er ég aftur byrjaður á Þristinum hans Tomma. Hér er ég að raða rifjunum á vængmiðjuna:
20200718_145839.jpg
20200718_145839.jpg (128.45 KiB) Skoðað 3695 sinnum
20200718_162110.jpg
20200718_162110.jpg (150.26 KiB) Skoðað 3695 sinnum
Nú vantar mig bara tvo mótora til að geta klárað mótorfestingarnar.

8-)

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstað: 21. Júl. 2020 13:34:48
eftir Gaui
Þá heldur Vængmiðjan á Draumavélini hans Tomma áfram. Hér er afturbrúnin komin á til að verja rifin of klæðningin til hliðar að festast í öllu líminu sem ég sullaði á rifin.
20200721_111524.jpg
20200721_111524.jpg (144.98 KiB) Skoðað 3643 sinnum
Hér sést að ég setti vef á milli rifjanna þó að teikning og leiðbeiningar hafi ekki farið fram á slíkt. Þetta styrkir bara vænginn, og ekki veitir af.
20200721_114101.jpg
20200721_114101.jpg (124.57 KiB) Skoðað 3643 sinnum
Hér er frambrúnarklæðningin komin á og framparturinn á vængnum myndar lokað D-box. Það ætti að koma í veg fyrir að vængmiðjan geti undist (vonandi) þó að botklæðningin sé ekki komin á alveg strax.
20200721_130141.jpg
20200721_130141.jpg (145.54 KiB) Skoðað 3643 sinnum
8-)

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstað: 2. Ágú. 2020 14:37:27
eftir Gaui
Ég er byrjaður að skera út skrokkrifin. Það eru 21 rif, svo að þessi 11 eru um það bil helmingurinn.
20200802_113237.jpg
20200802_113237.jpg (143.84 KiB) Skoðað 3537 sinnum
8-)

Re: Draumavélin hans Tomma

Póstað: 6. Ágú. 2020 16:48:19
eftir Gaui
Nú get ég byrjað að raða skrokknum saman. Ég ætla að smíða skrokkinn heilan, ekki hluta hann í tvent eins og teikningin sýnir. og þess vegan byrja ég á að skera út balsabretti sem er eins í laginu og kjölurinn undir skrokknum. Þetta undirlag, eða skorður lími ég á beint og slétt smíðabretti. Hér er kjölurinn líka kominn á: honum er haldið á sínum stað með límböndum.
20200806_150029.jpg
20200806_150029.jpg (152.96 KiB) Skoðað 3452 sinnum
Svo er hægt að raða rifjunum á. Ég byrja á miðjum skrokknum yfir vængnum, því þar eru hliðarnar alveg samsíða. Þegar búið er að líma þessi rif föst ætti grindin að vera nokkuð stíf. Ef ekki, þá set ég skástífur á hana til öryggis á meðan ég raða restinni af rifjunum á.
20200806_161747.jpg
20200806_161747.jpg (152.68 KiB) Skoðað 3452 sinnum
8-)