Síða 1 af 1

Arnarvöllur - 25.maí 2021 - Flotflugkoma FMS

Póstað: 25. Maí. 2021 23:17:55
eftir Sverrir
Flotflugkoma FMS var haldin fyrr í kvöld á Seltjörn við Arnarvöll. Eysteinn og Maggi létu smá yfirferð á logninu ekki stoppa sig og skelltu sér út á vatnið og sýndu skemmtilega takta í kvöldsólinni. Ég var á vídeóvélinni svo engar kyrrmyndir eru til af fluginu en Maggi mun örugglega koma hreyfimyndunum inn við fyrsta tækifæri.

Við ætlum líka að nota tækifærið og blása til reglulegra flotflugkvölda í sumar, kíkið á atburðaskrána til að sjá þau kvöld sem um ræðir.
Svo er fólki að sjálfsögðu frjálst að koma með flotvélar hvenær ársins sem er. :)

IMG_3746.jpg
IMG_3746.jpg (273.39 KiB) Skoðað 1395 sinnum

IMG_3747.jpg
IMG_3747.jpg (115.77 KiB) Skoðað 1395 sinnum

IMG_3758.jpg
IMG_3758.jpg (242.61 KiB) Skoðað 1395 sinnum

IMG_3756.jpg
IMG_3756.jpg (119.16 KiB) Skoðað 1395 sinnum

Re: Arnarvöllur - 25.maí 2021 - Flotflugkoma FMS

Póstað: 26. Maí. 2021 16:47:16
eftir maggikri




Re: Arnarvöllur - 25.maí 2021 - Flotflugkoma FMS

Póstað: 26. Maí. 2021 22:42:13
eftir Eysteinn
Frábært kvöld í góðum félagsskap.
Þetta var virkilega skemmtilegt og ég hlakka til að endurtaka þetta með ykkur.
Takk fyrir mig.

P.s.
Flottar myndir hjá ykkur ;)

Re: Arnarvöllur - 25.maí 2021 - Flotflugkoma FMS

Póstað: 27. Maí. 2021 01:13:18
eftir maggikri
Takk sömuleiðis. Snilldarflugkoma í hressandi veðri!
Á myndum og myndbandi má sjá hversu mikill öldugangurinn var og vindurinn líka. Núna kom vatn í hitt flotið sem ekki kom vatn í síðast. Þetta flot var með waterrudder servóinu og það lekur inn með því í svona öldugangi.
Stærri gerðin af "Tundra" 1700mm er bara nokkuð falleg og skemmtileg á flotholtum!
kv
MK