Kambar - 3.júlí 2021
Póstað: 3. Júl. 2021 21:55:32
Eftir hástartflug dagsins skelltum ég og Elli okkur í Kambana en þar voru þá SA 7-9 m/s og bullandi hangveður. Skemmst er frá því að segja að við tókum nokkrar góðar rispur í þessari einmuna veðurblíðu og elstu menn muna ekki eftir öðru eins stuttbuxnaveðri í Kömbunum.