Kambar - 10.júlí 2021 - Júlímót F3F

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Kambar - 10.júlí 2021 - Júlímót F3F

Póstur eftir Sverrir »

Eins og í fyrra urðum við 5 sem mættum til keppnis á júlímótið en að auki fengum við 3 aðstoðarmenn sem létti talsvert undir með okkur. Aðstæður voru nokkuð góðar, 10-11 m/s og nokkuð stöðugur vindur allan daginn. Keppnin gekk vel fyrir sig og urðu engin óhöpp á mönnum né vélum fyrir utan einstaka rispur eins og gengur og gerist.

Eftir fyrstu þrjár umferðirnar var stutt matarhlé en að því loknu var tekið til og flognar sex umferðir í viðbót áður en menn ákváðu að láta þetta gott heita. Upplýsingaskjárinn stóð sig líka mjög vel í frumraun sinni og voru viðstaddir sammála um að hann væri til mikilla bóta fyrir þá sem eru að fylgjast með þar sem það heyrist ekki alltaf svo vel í rokinu á hvaða tíma flugmennirnir eru að fljúga á auk þess sem hann birtir upplýsingar um næstu flugmenn og vind.

Hraðasta fyrsta legg átti Erlingur en hann var 2,09 sekúndur í þriðju umferð en besta tímann átti Sverrir á 48,13 sekúndum í níundu umferð. Þessa og aðra tölfræði er hægt að skoða í flipunum [Preliminary Rounds | Pilots | Posistion Chart | Rankings | Stats | Graphs] inn á F3XVault.

Aðstoðarmennirnir Árni, Frímann og Hannes fá kærar þakkir fyrir aðstoðina frá keppendum og mótsstjórn.

Stuttbuxnaveðrið skall svo ekki á fyrr en eftir miðjan dag. ;)

Rásröðin var sem hér segir:
  1. Erlingur
  2. Böðvar
  3. Sverrir
  4. Guðjón
  5. Jón
Úrslit urðu sem hér segir, áhugasamir geta skoðað nánari greiningu á vef F3XVault:
stig.png
stig.png (34.34 KiB) Skoðað 644 sinnum

IMG_4776.jpg
IMG_4776.jpg (176.75 KiB) Skoðað 644 sinnum

IMG_4779.jpg
IMG_4779.jpg (192.58 KiB) Skoðað 644 sinnum

IMG_4781.jpg
IMG_4781.jpg (247.98 KiB) Skoðað 644 sinnum

IMG_4783.jpg
IMG_4783.jpg (288.44 KiB) Skoðað 644 sinnum

IMG_4786.jpg
IMG_4786.jpg (165.46 KiB) Skoðað 644 sinnum

IMG_4788.jpg
IMG_4788.jpg (219.74 KiB) Skoðað 644 sinnum

IMG_4792.jpg
IMG_4792.jpg (72.47 KiB) Skoðað 644 sinnum

IMG_4796.jpg
IMG_4796.jpg (66.3 KiB) Skoðað 644 sinnum

IMG_4798.jpg
IMG_4798.jpg (113.48 KiB) Skoðað 644 sinnum

IMG_4799.jpg
IMG_4799.jpg (168.97 KiB) Skoðað 644 sinnum

IMG_4805.jpg
IMG_4805.jpg (152.8 KiB) Skoðað 644 sinnum

Vel merkt vél.
IMG_4766.jpg
IMG_4766.jpg (110.72 KiB) Skoðað 644 sinnum

Þar skall flugmódel nærri stein!
IMG_4809.jpg
IMG_4809.jpg (386.42 KiB) Skoðað 644 sinnum

Sólin kom svo fram af fullum krafti eftir mótið.
IMG_4811.jpg
IMG_4811.jpg (220.37 KiB) Skoðað 644 sinnum

IMG_4813.jpg
IMG_4813.jpg (161.71 KiB) Skoðað 644 sinnum
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Kambar - 10.júlí 2021 - Júlímót F3F

Póstur eftir Sverrir »

Icelandic Volcano Yeti
Svara