Stærsta smíðaverkefni ársins!
Póstað: 23. Des. 2021 01:07:35
Eftir að Gunni eignaðist 3D prentara ákvað hann að næla sér í 3D skanna til að nota með honum. Fljótlega eftir það var ákveðið að það þyrfti nú að nota hann í eitthvað gagnlegt tengd flugmódelsportinu og þar sem „alvöru“ flugmódel þurfa „alvöru“ flugmenn þá var auðvitað ekkert annað í boði en að græja einn svoleiðis.
Eftir langa bið þá skilaði skanninn sér til landsins með haustskipinu og eftir nokkrar prufur á líflausum hlutum var ekkert að vanbúnaði að prófa skannann á lifandi viðfangsefni. Ákveðið var að Steini yrði fyrsta fórnarlambið viðfangsefnið og var hann meira en tilbúinn í það og sá fyrir sér að nú færi Orlik að fljúga sjálf um loftin blá!
Nei, Gunni er ekki að raka hausinn á Steina, þetta er þrívíddarskanninn, tvær myndavélar á sitt hvorum enda sem bera þarf upp að viðfangsefninu í ákveðinni fjarlægð sem gefur bestu niðurstöðuna. Forritið sem fylgir með lætur þig vita með hljóðmerki og merkingum á skjá hversu langt frá ákjósanlegri fjarlægð þú ert hverju sinni.
Hérna sést þetta betur á tölvuskjánum.
Og svo að sjálfsögðu á hreyfimynd.
Allt að gerast.
Næstu þrjár myndir eru nokkuð nálægt endanlegri útkomu á þrívíddarmódelinu eftir nokkrar tilraunir til skönnunar.
Eins og með öll stærri verkefni var byrjað á lítilli frumgerð áður en ráðist var í réttu stærðina.
Fer ekkert á milli mála hver þetta er!
Hér sést svo beta útgáfan ásamt 40% útgáfunni af Steina útprentaðar og komnar í þennan líka fína flugfrakka.
Eins og sjá má á myndinni að ofan var litli Steini svolítið fölur eftir langan og strangan vetur svo það var búið að undirstinga Mumma á Akureyri í að taka hann litla Steina í smá förðun fyrir okkur og eins og sjá má á næstu myndum heppnaðist það líka svona ljómandi vel.
Og hér sést endanlega útkoman, fullskala Steini litli er hægra megin á myndinni ef menn skyldu ekki vera alveg vissir!
Ég held að það sé óhætt að segja að þetta hafi tekist vonum framar og Steini var mjög sáttur við útkomuna!
Í svona stóru verkefni þá eru ótalmargir sem koma að þessu og fá kærar þakkir fyrir veitta aðstoð; Tommi sem græjaði flutninginn á milli landsfjórðunga, Árni „okkar“ fyrir andlegan, og veraldlegan, stuðning, Jón V. Pé sem sá um hótelmál og akstur innanbæjar fyrir litla Steina, Mummi fyrir förðunina, Árni Hrólfur fyrir jólasveinahlutverkið og síðast en ekki síst Gunni fyrir 3D skönnun og prentunina.