Tenerife - 23.desember 2021

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
stebbisam
Póstar: 179
Skráður: 24. Feb. 2018 18:55:20

Tenerife - 23.desember 2021

Póstur eftir stebbisam »

Smá jóla/módel/pistill.
Hér minnir fátt á jólin, fáar skreytingar og jólatréið okkar er bara 34cm og 10 kúlur. Spönsk jól eru reyndar ekki fyrr en 6 janúar, en þeir umbera okkar jóladag og veitingastaðir hér taka mið af því.
En jólamaturinn okkar verður alíslenskur "carne de cerdo ahumada" sem við köllum hamborgarhrygg og við hlustum á messuna kl.6 á morgun.

Garðyrkjustöð í nágrenninu er með sömu jólasveinaflugvélina og í fyrra, en hún flýgur sennilega aldrei og er ekki til sölu.

Gaman væri nú að geta skroppið á Arnarvöll og hitt félagana en það er ekki í boði að sinni. Í staðin fann ég tvo góða staði til að fljúga, annar hérna rétt hjá og hinn um 24km fyrir austan, báðir við ströndina.
Ég fór snemma í morgun að fljúga, logn og kalt í morgunsárið kl.9, 20°, en um hádegið er vanalega 25+, alltaf austan 10m vindur og vel nothæft uppstreymi.

Myndirnar segja meira en mörg orð - gleðileg jól til allra heima á fróni.
Viðhengi
Simamynd430s.jpg
Simamynd430s.jpg (209.81 KiB) Skoðað 709 sinnum
GOPR1400s.JPG
GOPR1400s.JPG (264.75 KiB) Skoðað 709 sinnum
Simamynd011s.jpg
Simamynd011s.jpg (108.38 KiB) Skoðað 709 sinnum
Simamynd026s.jpg
Simamynd026s.jpg (115.28 KiB) Skoðað 709 sinnum
Simamynd036s.jpg
Simamynd036s.jpg (118.5 KiB) Skoðað 709 sinnum
Barasta
Passamynd
maggikri
Póstar: 5655
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Tenerife - 23.desember 2021

Póstur eftir maggikri »

Sæll Stebbi

Alltaf gaman að fá pistil frá þér! Yljar okkur um hjartaræturnar.
Við hugsum til þín hér á fróni og látum okkur dreyma um suðræna strönd!


Jólao og áramótakveðjur frá klakanum.

MK
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11465
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Tenerife - 23.desember 2021

Póstur eftir Sverrir »

Gaman að þessu, bestu kveðjur í sólina!
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
arni
Póstar: 276
Skráður: 3. Okt. 2012 18:55:55

Re: Tenerife - 23.desember 2021

Póstur eftir arni »

Flottur Stebbi.Gleðileg Jól til ykkar.
Kv.Árni F.
Svara