Venjulegur flugdagur við el Pois vitann, þægilegur andvari og 24°C.
Þegar ég skoðaði myndirnar frá Bleiksteinshálsi hugsaði ég hvað þetta eru ólíkir heimar, fyrir nokkrum dögum var hér þriðji rigningardagurinn frá því að við komum í október, eiginlega smá tilbreyting.
Svo er mynd af baðströnd nyrst á eyjunni, Playa de las Teresitas, þangað fara fáir túristar og sandurinn er innfluttur, því gylltur sandur finnst varla á eyjunni.
Svo bárust þær fréttir að von væri á málara úr Hafnarfirði hingað, þá fjölgar módelmönnum um helming.