Eftir frekar vindlausan dag þá fór Kári aðeins að lifna við á Vesturlandinu þegar leið á daginn svo það var ekkert annað í stöðunni en að skunda norður í Melasveit og láta reyna á aðstæður þar. Sem fyrr voru Mark og John með í för en nú var Armin Hortzitz frá Þýskalandi búinn að bætast í hópinn. Þegar við mættum á staðinn voru ekkert alltof glæsilegar aðstæður en samt flughæft, 5-6 m/s og aðeins krossað. Ég fékk heiðurinn af fyrsta flugi dagsins og svo skellti Mark sér í loftið á eftir mér en svo fór heldur að draga niður í Kára eftir það svo seinna flugið mitt var í styttra lagi og John og Armin ákváðu að halda sig á jörðinni.
Armin mættur.
Þeir feðgar spá í hanginu.
Armin, Mark og John.
Haldið heim á leið.
Melasveit - 27.apríl 2022
Melasveit - 27.apríl 2022
Icelandic Volcano Yeti