Veðurútlitið var ekki hagstætt fyrir fyrsta daginn á Iceland Open F3F 2022 en ákveðið var að byrja á Bleikisteinshálsi við Hamranesið og var fyrsti flugmannafundur og setning mótsins á dagskrá kl. 11. Fyrstu menn voru mættir á svæðið um 10 leytið og náðist að taka eitt flug á keppnisvél áður en mótið var sett en svo ekki sögunni meir. Meira að segja léttustu flygildin áttu í mestu vandræðum með að halda sér á lofti í mesta logninu.
Veðurspáin hljóðaði upp á að bæta ætti í vindinn upp úr hádegi og vissulega gerðist það, í ca. 3 mínútur, en svo snérist vindurinn í nærri 180° og fór að „blása“ úr norðri á okkur. Ekki stefndi í neina breytingu á veðri svo deginum var slaufað snemma en talsvert betur lítur út með morgundaginn og útlit fyrir stöðuga vestanátt í Draugahlíðunum.
Frábært veður en alveg afskaplega leiðinlegt hangveður.
Bleikisteinsháls - 29.apríl 2022 - Iceland Open F3F 2022
Bleikisteinsháls - 29.apríl 2022 - Iceland Open F3F 2022
Icelandic Volcano Yeti
Re: Bleikisteinsháls - 29.apríl 2022 - Iceland Open F3F 2022
Já dagurinn var í rólegri kanntinum.
- Viðhengi
-
- 20220429_104903_compress90.jpg (449.34 KiB) Skoðað 327 sinnum
-
- 20220429_112359_compress83.jpg (400.48 KiB) Skoðað 327 sinnum
-
- 20220429_133549_compress13.jpg (416.29 KiB) Skoðað 327 sinnum
-
- 20220429_122344_compress44.jpg (427.12 KiB) Skoðað 327 sinnum
-
- 20220429_112535_compress91.jpg (358.86 KiB) Skoðað 327 sinnum