Easter Slope 2022
Póstað: 12. Maí. 2022 21:10:18
Við Elli skelltum okkur til Danmerkur yfir Páskana, bæði í æfingabúðir eftir langan vetur en einnig til að taka þátt í Easter Slope 2022. Keppnin var á laugardegi og Páskadegi, frekar rólegt var á laugardeginum en samt náðum við að fljúga 4 umferðir, öllu meiri vindur var á sunnudeginum og þá náðust fimm umferðir í hús. Elli tók að sér smíðar á millileggi á laugardeginum þar sem ég átti ekki nóg fyrir okkur báða, gæti stefnt í efnilega aukabúgrein þar á bæ!
Árangurinn var svo sem eins og við er að búast eftir langan vetur en ég náði 25. sæti í heildina og fjórða sæti í einni umferð og skaut þar nokkrum heimsmeisturum aftur fyrir mig, lifi í nokkrar vikur á því. Elli náði 30. sætinu og var óheppinn að vera ekki aðeins ofar.
Hægt er að sjá nánari útlistun á F3XVault > https://f3xvault.com/?action=event&func ... nt_id=2231