Síða 1 af 1

Re: Styttist í Akureyri

Póstað: 25. Júl. 2005 10:11:42
eftir Sverrir
Hvernig er stemmningin í mönnum fyrir flugkomuna á Akureyri?

Re: Styttist í Akureyri

Póstað: 25. Júl. 2005 18:23:47
eftir HjorturG
Bara mjög góð, búinn að hlakka til alveg frá síðustu akureyrarferð. Nú verða bara allir að mæta, þetta er aðal viðburður ársins!!!!!!!!

P.s. Bannað að missa af þessu...

Re: Styttist í Akureyri

Póstað: 25. Júl. 2005 20:50:15
eftir Björn G Leifsson
150%

Re: Styttist í Akureyri

Póstað: 1. Ágú. 2005 23:30:21
eftir Ingþór
bara nokkuð harður sko, ég mæti með 2 þyrlur og eina í næturbúning :) og allavega kippu af góðum akureyskum víking (er hann nokkuð ódýrari þarna, fer maður gegnum fríhöfn?), tjald, konu, svefnpoka og gott skap.... munið þið eftir einhverju fleirru sem maður þarf að hafa meðferðis?

Re: Styttist í Akureyri

Póstað: 1. Ágú. 2005 23:54:14
eftir Björn G Leifsson
[quote=Ingþór]bara nokkuð harður sko, ég mæti með 2 þyrlur og eina í næturbúning :) og allavega kippu af góðum akureyskum víking (er hann nokkuð ódýrari þarna, fer maður gegnum fríhöfn?), tjald, konu, svefnpoka og gott skap.... munið þið eftir einhverju fleirru sem maður þarf að hafa meðferðis?[/quote]
Flugvél ? (eða tvær???)

Re: Styttist í Akureyri

Póstað: 1. Ágú. 2005 23:58:12
eftir Sverrir
Hvar fær maður svona konur? Er e-ð vit í því að reka svona apparat :rolleyes:

Annars tek ég bara undir með Birni ;)

Re: Styttist í Akureyri

Póstað: 2. Ágú. 2005 12:49:09
eftir Ingþór
flugvél plugvél!
konur fær maður á undarlegum stöðum, oft hjá vinum og kunningjum, og það er fínt að reka þær, ef þær eru vel stiltar, svona eins og erfiður 2 stroke kannski, erfitt að fíntjúnna en ganga vel þegar það gengur, en svo þarf oft ekki nema eitt klikk til eða frá til að allt fari til fj***ans.
og já, það er erfitt að svífa á konu, hafa flugeiginleika á við múrsteina

Re: Styttist í Akureyri

Póstað: 2. Ágú. 2005 12:56:53
eftir Björn G Leifsson
Smá "rekstrarfræði":

Til þess að kona geti verið hamingjusöm með manni, verður hún að vera sérlega skilningsrík og elska hann að minnsta kosti smávegis.
Til þess að maður geti verið hamingjusamur með konu, verður hann að elska hana út af lífinu og ekki einu sinni reyna að skilja hana.

:P

Re: Styttist í Akureyri

Póstað: 2. Ágú. 2005 13:20:51
eftir Björn G Leifsson
Og svona til að bæta við ráðleggingar Ingþórs , á máli sem notendur þessa vefjar skilja.

Muna að kveikja á kertinu, helst áður en byrjað er á gangsetningarferlinu.
Præma vel með nógu "nítró" (Kampavín best, en ekki of mikið þá fyllast þær og maður kemur þeim aldrei í gang fyrr en runnið er af þeim aftur). Snúa í gang með fingri því rafstartari er sjaldan notaður í þessu. Getur þó komið að gagni þegar þær eru orðnar slitnar og sumar nota rafknúna sjálfstartara í hallæri.
Eftir tilkeyrslutímabilið þarf gjarnan hátt smurolíuhlutfall til þess að þær drepi síður á sér í miðju flugi.

Góð meðferð milli fluga og after-run ígjafir (demantar og súkkulaði best) er nauðsynleg til þess að tryggja framtíða gangsetningar og örugg flug.


;)

Re: Styttist í Akureyri

Póstað: 2. Ágú. 2005 13:31:58
eftir Sverrir
:D